„Hávarður Þórðarson“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
m (Verndaði „Hávarður Þórðarson“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 9. maí 2014 kl. 18:36
Hávarður Þórðarson frá Sléttabóli á Brunasandi í V-Skaftafellssýslu, fæddist 26. janúar 1902 og lézt á Sjúkrahúsinu í Eyjum 16. janúar 1934.
Foreldrar hans voru Þórður bóndi á Sléttabóli á Brunasandi í V-Skaft. og í Neðri-Dal þar, f. 8. október 1854 á Syðri-Velli í Flóa, d. 8. apríl 1945 í Neðri-Dal, Magnúsar bónda í Brandshúsum í Gaulverjabæjarhreppi, Árn., f. 1828, Guttormssonar og konu Magnúsar í Brandshúsum, Ingibjargar húsfreyju Þórðardóttur. Móðir Hávarðar og kona (1889) Þórðar bónda var Eygerður húsfreyja, f. 23. marz 1866 á Orustustöðum í V-Skaft., d. 1. janúar 1954 í Neðri-Dal, Magnúsar bónda á Sléttabóli, f. 1834, d. 1888, Magnússonar og konu (1864) Magnúsar á Sléttabóli, Sigríðar húsfreyju, f. 1838, d. 1925, Hávarðsdóttur.
Hávarður var bróðir Þórðar Þórðarsonar á Sléttabóli, f. 1893, Sigurðar Þórðarsonar á Boðaslóð, f. 1894, Magnúsar Ingibergs, síðar í Reykjavík, f. 1895 og Ásbjarnar Þórðarsonar, f. 1899.
Hávarður ólst upp hjá foreldrum sínum á Sléttabóli og í Neðri-Dal, var síðan í vinnumennsku. Síðast var hann í Eyjum og dó þar á Sjúkrahúsinu 1934.
Barnsmóðir: Guðfinna Einarsdóttir, f. 1906.
Barn þeirra er Sigurbergur, f. 1927.
Myndir
Heimildir
- Upphaflega grein skrifaði Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Björn Magnússon. Vestur-Skaftfellingar. Reykjavík: Prentsmiðjan Leiftur H.F., 1970-1973.
- Niðjatal Sigurbjargar Sigurðardóttur á Burstafell]]i, Vestmannaeyjum.
- Pers.
- Sigurbergur Hávarðsson.