„Hallur Hróbjartsson (Búastöðum)“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
Ekkert breytingarágrip |
m (Verndaði „Hallur Hróbjartsson (Búastöðum)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 9. maí 2014 kl. 13:59
Hallur Hróbjartsson bóndi á Búastöðúm fæddist um 1727 og lést 3. mars 1808.
Hann var bóndi á Búastöðum 1801 og bjó þar ásamt konu sinni Önnu Árnadóttur og dóttur þeirra Ragnhildi Hallsdóttur.
Hallur hlaut heiðurspening fyrir umbætur í jarðrækt, líklega tilraunir til kornræktar á síðari hluta 18. aldar.
Hans er getið í formannavísum Magnúsar Magnússonar vertíðina 1765.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Manntal 1801.
- Prestþjónusubók.
- Saga Vestmannaeyja I./VIII. Þjóðlífslýsingar, 5. hluti.
- Saga Vestmannaeyja II. Einokunarverzlunin.
- Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum, Formannavísur og hásetaraðir.