„Jón Pétursson yngri (Elínarhúsi)“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
(Ný síða: '''Jón Pétursson''' bóndi í Elínarhúsi fæddist 2. maí 1849 á Vatnsskarðshólum í Mýrdal og hrapaði til bana úr Klifi 26. ágúst 1878.<br> Foreldrar hans voru P...) |
m (Verndaði „Jón Pétursson yngri (Elínarhúsi)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 8. maí 2014 kl. 21:34
Jón Pétursson bóndi í Elínarhúsi fæddist 2. maí 1849 á Vatnsskarðshólum í Mýrdal og hrapaði til bana úr Klifi 26. ágúst 1878.
Foreldrar hans voru Pétur bóndi í Vatnsskarðshólum, f. 11. júlí 1817 á Syðsta-Hvoli þar, d. 3. júní 1866 í Vatnsskarðshólum, Erlendsson og kona hans Guðríður húsfreyja, f. 27. ágúst 1823 á Ketilsstöðum í Mýrdal, d. 27. júní 1910 á Rauðhálsi þar.
Jón var með foreldrum sínum til 1868. Hann var vinnumaður í Draumbæ 1870, en bóndi í Elínarhúsi við andlát 1878.
Hann lést af slysförum 1878.
Kona Jóns var Margrét Þorsteinsdóttir húsfreyja í Elínarhúsi, síðar í Vesturheimi, f. 1840.
Barn þeirra hér:
Jóhanna Petrína Jónsdóttir, f. 24 apríl 1878, d. 19. júlí 1890, 12 ára.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Manntöl.
- Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.
- Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.