„Guðrún Sigurðardóttir (Fredensbolig)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
m (Verndaði „Guðrún Sigurðardóttir (Fredensbolig)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 8. maí 2014 kl. 19:33
Guðrún Sigurðardóttir frá Hallgeirsey í A-Landeyjum, húsfreyja í Fredensbolig, fæddist 14. maí 1814 og lést 16. júlí 1842.
Foreldrar hennar voru Sigurður Jónsson (Stakkagerði)Sigurður Jónsson bóndi í Hallgeirsey, f. 1773, d. 24. janúar 1856 í Eyjum, og kona hans, Kristín Ólafsdóttir húsfreyja og ljósmóðir, f. 1775, d. 30. maí 1859.
Guðrún var alsystir Sesselju Sigurðardóttur húsfreyju og ljósmóður í Stakkagerði.
Guðrún ólst upp hjá foreldrum sínum. Hún var 2 ára með þeim í Hallgeirsey 1816, 26 ára húsfreyja í Fredensbolig í Eyjum 1840 með Lars og barninu Amelie Christine 3 ára.
Ingunn fæddist 1841, og Guðrún lést ári síðar.
Maður Guðrúnar var Lars Tranberg skipstjóri og hafnsögumaður, f. um 1805, d. 30. september 1860 í Eyjum. Hún var fyrri kona hans.
Börn Guðrúnar og Lars:
1. Amalía Kristín Larsdóttir, f. 1837, d. 10. febrúar 1847.
2. Ane Marie Larsdóttir, f. 18. október 1939.
3. Ingunn Ane Marie Larsdóttir, f. 6. maí 1841. Hún bjó í Danmörku.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.is.
- Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
- Manntöl.