„Steinvör Ormsdóttir (Presthúsum)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
m (Verndaði „Steinvör Ormsdóttir (Presthúsum)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 15. apríl 2014 kl. 21:30
Steinvör Ormsdóttir húsfreyja í Presthúsum fæddist 1762 á Vilborgarstöðum og lést 1. desember 1853.
Faðir hennar var líklega Ormur Jónsson bóndi á Vilborgarstöðum 1762, f. um 1724.
I. Barnsfaðir hennar var Tómas Einarsson frá Selkoti.
Barn þeirra var:
Andvana drengur fæddur 28. september 1787.
II. Steinvör var, (12. júlí 1789), 3. kona Nikuláss Gunnsteinssonar bónda í Presthúsum, f. 1744, d. 19. desember 1826.
Börn þeirra hér:
5. Andvana fæddur drengur 23. apríl 1790.
6. Margrét Nikulásdóttir, f. 18. október 1791, d. 24. október 1791 „af sóttveiki“.
7. Margrét Nikulásdóttir, f. 12. maí 1793, d. 17. maí 1793, 5 daga gömul úr ginklofa.
8. Ormur Nikulásson, f. 13. júní 1794, d. 25. júní 1794 úr ginklofa, tveggja vikna gamall.
9. Andvana stúlka, f. 20. október 1797.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.