„Kristín Guðmundsdóttir (Ömpuhjalli)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Kristín Guðmundsdóttir''' frá Ömpuhjalli fæddist 19. október 1854 og lést 25. maí 1900 í Vesturheimi.<br> Foreldrar hennar voru [[Guðný Árnadóttir (Ömpuhjalli)|Guðn...)
 
m (Verndaði „Kristín Guðmundsdóttir (Ömpuhjalli)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 24. mars 2014 kl. 14:08

Kristín Guðmundsdóttir frá Ömpuhjalli fæddist 19. október 1854 og lést 25. maí 1900 í Vesturheimi.
Foreldrar hennar voru Guðný Árnadóttir húsfreyja, f. 27. desemeber 1834, d. 7. desember 1916 í Vesturheimi, og maður hennar Guðmundur Árnason tómthúsmaður, meðhjálpari, skírður 25. september 1827, d. 9. október 1879.

Kristín fór til Vesturheims 1892 ásamt Jóni Hreinssyni og tveim börnum þeirra, Rósu 13 ára og Jóhanni 5 ára. Jón Kristinn mun hafa farið síðar.

Maður Kristínar, (17. október 1879), var Jón Hreinsson formaður, f. 21. janúar 1858, d. 7. október 1948.
Börn þeirra hér:
1. Rósa Jóhanna Sigríður Jónsdóttir, f. 15. janúar 1880. Hún fór til Vesturheims með foreldrum sínum.
2. Sigríður Guðmundína Jónsdóttir, f. 27. júlí 1883, d. 9. apríl 1885.
3. Jóhann Sigurmundur Jónsson, f. 21. ágúst 1887. Fór til Vesturheims með foreldrum sínum.
4. Jón Kristinn Jónsson, f. 11. júlí 1891. Hann fór til Vesturheims.

„Christine, daughter of Gudmundur and Gudny Arnason was born October 19, 1864, in Vestmannaeyjar, Iceland. She married Jon Hreinson January 1, 1888, and they followed her mother to Utah. They were the parents of three children, Rose, Jon (Jack) and Christian.
Mr. Hreinson was manager of the Spanish Fork Icelandic Store. Mrs. Hreinson, like her sisters was a homemaker and a member of the Icelandic Literary Society. Christine passed away May 25, 1900, while Jon lived until October 7, 1948.“ (Ljósrit úr google: Utah Icelandic Settlement).


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Utah Icelandic Settlement (google).
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.