„Sigríður Erlendsdóttir (Vilborgarstöðum)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Sigríður Erlendsdóttir''' vinnukona frá Vilborgarstöðum fæddist 15. nóvember 1788 og lést 22. júlí 1860.<br> Foreldrar hennar voru [[Erlendur Ól...) |
m (Verndaði „Sigríður Erlendsdóttir (Vilborgarstöðum)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 12. mars 2014 kl. 20:20
Sigríður Erlendsdóttir vinnukona frá Vilborgarstöðum fæddist 15. nóvember 1788 og lést 22. júlí 1860.
Foreldrar hennar voru Erlendur Ólafsson bóndi á Vilborgarstöðum, f. 11. apríl 1754, d. 5. júní 1807, og kona hans Solveig Jónsdóttir húsfreyja, f. 1752, d. 2. júlí 1829.
Sigríður var 11 ára hjá foreldrum sínum á Vilborgarstöðum 1801. Hún er ekki á skrá 1816.
Sigríður eignaðist Guðrúnu 1817, en hún dó nýfædd. Hún var ógift vinnukona á Vilborgarstöðum 1840, 1845 og 1850, og var niðursetningur á Löndum við andlát úr umgangsveiki og ellihrumleika 1860.
Barnsfaðir Sigríðar var Þorsteinn Guðmundsson, þá sagður kvæntur bóndi á Vesturhúsum.
Barnið var
1. Guðrún Þorsteinsdóttir, f. 13. september 1817, d. 21. september 1817 úr „Barnaveiki“, (mun vera ginklofi).
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.