„Stjörnufræðifélag Vestmannaeyja“: Munur á milli breytinga
(Safnahelgin 2013) |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 17: | Lína 17: | ||
* 15. mars 2013 á [[Breiðabakki|Breiðabakka]], Fylgst með halastjörnunni '''Pan-STARRS''', sem sást sæmilega í handsjónaukum, en lágskýjað var, 8 manns sóttu atburðinn. | * 15. mars 2013 á [[Breiðabakki|Breiðabakka]], Fylgst með halastjörnunni '''Pan-STARRS''', sem sást sæmilega í handsjónaukum, en lágskýjað var, 8 manns sóttu atburðinn. | ||
* 17. sept. 2013 í [[Bókasafn Vestmannaeyja|Safnahúsinu]] - '''Sævar Helgi Bragason''', form. SSFS, um '''Tunglferðirnar''', einnig um Fjarreikistjörnur, Marsjeppann og Halastjörnuna ISON, 33 sóttu fundinn. Eftir fyrirlesturinn var farið á [[Haugasvæði|Haugasvæðið]], í stjörnuskoðun, mæting þar 9 manns í hávaðaroki. | * 17. sept. 2013 í [[Bókasafn Vestmannaeyja|Safnahúsinu]] - '''Sævar Helgi Bragason''', form. SSFS, um '''Tunglferðirnar''', einnig um Fjarreikistjörnur, Marsjeppann og Halastjörnuna ISON, 33 sóttu fundinn. Eftir fyrirlesturinn var farið á [[Haugasvæði|Haugasvæðið]], í stjörnuskoðun, mæting þar 9 manns í hávaðaroki. | ||
* október 2013 Félagið afhenti Grunnskólanum í Vestmannaeyjum '''Jarðarbolta''', ásamt bókum til notkunar í kennslu. | |||
* 3. nóv. 2013 í [[Náttúrugripasafn Vestmannaeyja|Fiskasafninu]], '''[[Karl Gauti Hjaltason]]''', '''Halastjörnur''', 35 manns sóttu fyrirlesturinn á Safnahelginni í Eyjum. | * 3. nóv. 2013 í [[Náttúrugripasafn Vestmannaeyja|Fiskasafninu]], '''[[Karl Gauti Hjaltason]]''', '''Halastjörnur''', 35 manns sóttu fyrirlesturinn á Safnahelginni í Eyjum. | ||
Útgáfa síðunnar 16. desember 2013 kl. 12:07
Stjörnufræðifélag Vestmannaeyja var stofnað á hlaupársdeginum 29. febrúar 2012, en stofnfundur var á jafndægrum að vori þremur vikum seinna hinn 20. mars 2012. Áður hafði Karl Gauti Hjaltason sýslumaður haldið stjörnufræðinámskeið á vegum Visku. Námskeiðin voru afar vel sótt og fljótlega fór áhugi bæjarbúa að beinast meira að stjörnum. Eftir annan veturinn sem námskeiðið var haldið var ákveðið að stofna félag.
Á stofnfundinn mættu 27 en 34 skráðu sig sem stofnfélagar í félagið. Á stofnfundinum var stjórn félagsins kjörin ásamt formanni. Karl Gauti var kjörinn fyrsti formaður félagsins. Aðrir stofnmeðlimir voru Soffía Valdimarsdóttir, gjaldkeri, Margrét Lilja Magnúsdóttir, ritari, Bjartur Týr Ólafsson, tölvumál og Védís Guðmundsdóttir, meðstjórnandi.
Tilgangur félagsins er að vekja áhuga bæjarbúa á stjörnuskoðun ásamt því að koma af stað samstarfi við skóla bæjarins. Á vegum félagsins eru haldnir fyrirlestrar og hittast félagar við góð tækifæri til þess að skoða himingeiminn. Félagið heldur úti heimasíðunni: www.sfv.is en þar eru birtar fréttir úr starfi félagsins.
Stjörnufræðifélag Vestmannaeyja er þriðja áhugamannafélagið um stjörnufræði og stjörnuskoðun á Íslandi en fyrir eru Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness (SSFS) og Stjörnu-Oddi á Akureyri.
Helstu viðburðir og fyrirlestrar á vegum SFV:
- 12. apríl 2012 í Safnahúsinu - Kristján Heiðberg, félagi í SSFS um sjónauka og myndatökur, 35 sóttu fundinn.
- 21. apríl 2012 á útsýnispallinum austur á Eyju, fylgst með Lyritum stjörnuhröpum úr Hörpunni, 19 manns sóttu atburðinn. Nokkur hröp sáust.
- 2. júní 2012, Fiskasafninu, Karl Gauti Hjaltason, Stjörnur og sjófarendur, 35 manns sóttu fyrirlesturinn.
- 5. júní 2012 í Höfðavík, tilraun til að fylgjast með þvergöngu Venusar fyrir sólu, en ský hindruðu sýn, 30-40 manns sóttu atburðinn.
- 13. desember 2012 á útsýnispallinum austur á Eyju, fylgst með Geminidum stjörnuhröpum úr Tvíburunum, 25-35 manns sóttu atburðinn. Mikið af stórkostlegum hröpum sáust um allan himinn. Mjög hvasst og kalt.
- 31. jan. 2013 í Safnahúsinu - Sævar Helgi Bragason, form. SSFS, um Marsjeppann, 45 sóttu fundinn. Eftir fyrirlesturinn var farið á Haugasvæðið, í stjörnuskoðun, mæting þar ca. 20 manns.
- 15. mars 2013 á Breiðabakka, Fylgst með halastjörnunni Pan-STARRS, sem sást sæmilega í handsjónaukum, en lágskýjað var, 8 manns sóttu atburðinn.
- 17. sept. 2013 í Safnahúsinu - Sævar Helgi Bragason, form. SSFS, um Tunglferðirnar, einnig um Fjarreikistjörnur, Marsjeppann og Halastjörnuna ISON, 33 sóttu fundinn. Eftir fyrirlesturinn var farið á Haugasvæðið, í stjörnuskoðun, mæting þar 9 manns í hávaðaroki.
- október 2013 Félagið afhenti Grunnskólanum í Vestmannaeyjum Jarðarbolta, ásamt bókum til notkunar í kennslu.
- 3. nóv. 2013 í Fiskasafninu, Karl Gauti Hjaltason, Halastjörnur, 35 manns sóttu fyrirlesturinn á Safnahelginni í Eyjum.
Heimildir
- Tekið hefur saman Karl Gauti Hjaltason 2013.