„Vilborg Þórðardóttir (Elínarhúsi)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Vilborg Þórðardóttir''' húsfreyja í Elínarhúsi fæddist 4. febrúar 1831 og lést í Vesturheimi.
Faðir hennar var Þórður bóndi á Hjáleigusöndum og Hvammi u...) |
Ekkert breytingarágrip |

Lína 5: | Lína 5: | ||
Móðir Vilborgar í Elínarhúsi og síðari kona Þórðar á Hjáleigusöndum var Ólöf húsfreyja, f. 1789, d. 16. apríl 1859, Þorbjörnsdóttir bónda í Ásólfsskála 1801, f. 1772, Árnasonar Þorbjörnssonar, og konu Þorbjörns í Ásólfsskála, Vilborgar húsfreyju, f. 1771, Tómasdóttur.
| Móðir Vilborgar í Elínarhúsi og síðari kona Þórðar á Hjáleigusöndum var Ólöf húsfreyja, f. 1789, d. 16. apríl 1859, Þorbjörnsdóttir bónda í Ásólfsskála 1801, f. 1772, Árnasonar Þorbjörnssonar, og konu Þorbjörns í Ásólfsskála, Vilborgar húsfreyju, f. 1771, Tómasdóttur.

Vilborg var systurdóttir [[Vigdís Þorbjörnsdóttir (Svaðkoti)|Vigdísar Þorbjörnsdóttur]] í [[Svaðkot]]i og [[Eyjólfur Þorbjörnsson ( | Vilborg var systurdóttir [[Vigdís Þorbjörnsdóttir (Svaðkoti)|Vigdísar Þorbjörnsdóttur]] í [[Svaðkot]]i og [[Eyjólfur Þorbjörnsson (Búastöðum)|Eyjólfs]] hreppstjóra á [[Búastaðir|Búastöðum]].

Vilborg var með foreldrum sínum á Hjáleigusöndum 1835.
| Vilborg var með foreldrum sínum á Hjáleigusöndum 1835.

Lína 20: | Lína 20: | ||
5. Vilhjálmur Jónsson, f. 27. apríl 1868, fór til Utah 1874.
| 5. Vilhjálmur Jónsson, f. 27. apríl 1868, fór til Utah 1874.

II. Síðari maður | II. Síðari maður Vilborgar var [[Sigurður Árnason (Elínarhúsi)|Sigurður Árnason]], f. 1842.

{{Heimildir| | {{Heimildir| | ||
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]]. | *Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]]. |
Útgáfa síðunnar 17. nóvember 2013 kl. 11:11
Vilborg Þórðardóttir húsfreyja í Elínarhúsi fæddist 4. febrúar 1831 og lést í Vesturheimi.
Faðir hennar var Þórður bóndi á Hjáleigusöndum og Hvammi u. Eyjafjöllum, f. 1782 á Ytri-Sólheimum í Mýrdal, d. 27. júlí 1838 á Hjáleigusöndum, Sveinsson bónda, síðast á Hryggjum í Mýrdal, f. 1758, d. 20. október 1838 á Skeiðflöt í Mýrdal, Eyjólfssonar bónda á Hvoli í Mýrdal og Áshól u. Eyjafjöllum, f. 1715, og fyrri konu Eyjólfs, Þórunnar húsfreyju, f. 1716, Sigurðardóttur.
Móðir Þórðar á Hjáleigusöndum og kona Sveins á Hryggjum var Guðrún húsfreyja, f. 1760 í Kálfholti í Holtum, d. 7. júlí 1838 á Skeiðflöt, Þórðardóttir prests í Kálfholti, f. 1727, d. 20. desember 1770, Sveinssonar, og konu sr. Þórðar, Guðfinnu húsfreyju, f. 1734, d. 23. ágúst 1824, Þorsteinsdóttur.
Móðir Vilborgar í Elínarhúsi og síðari kona Þórðar á Hjáleigusöndum var Ólöf húsfreyja, f. 1789, d. 16. apríl 1859, Þorbjörnsdóttir bónda í Ásólfsskála 1801, f. 1772, Árnasonar Þorbjörnssonar, og konu Þorbjörns í Ásólfsskála, Vilborgar húsfreyju, f. 1771, Tómasdóttur.
Vilborg var systurdóttir Vigdísar Þorbjörnsdóttur í Svaðkoti og Eyjólfs hreppstjóra á Búastöðum.
Vilborg var með foreldrum sínum á Hjáleigusöndum 1835.
Hún var vinnukona í Ólafshúsum 1845, vinnukona í Frydendal 1857. Vinnukona í Elínarhúsi var hún 1860 og húsfreyja þar 1870.
Vilborg fluttist til Vesturheims 1874 með Sigurði Árnasyni, síðari manni sínum, og 4 börnum af fyrra hjónabandi sínu.
Vilborg var tvígift.
I. Fyrri maður hennar var Jón Pétursson formaður, f. 29. mars 1829, d. 15. júlí 1868.
Börn þeirra hér:
1. Andvana fædd stúlka 21. september 1857.
2. Guðrún Soffía Jónsdóttir, f. 25. janúar 1863, fór til Utah 1874. Hún giftist Pétri Valgarðssyni úr Reykjavík. Þau bjuggu í Alberta í Kanada.
3. Ólöf Þóranna Jónsdóttir, f. 6. nóvember 1864, fór til Utah 1874.
4. Jóhann Pétur Jónsson, f. 6. október 1866, fór til Utah 1874. Hann kvæntist Sólrúnu Guðmundsdóttur, dóttur Guðmundar Guðmundssonar í París. Hún fluttist vestur 1888, 20 ára vinnukona frá Juliushaab
5. Vilhjálmur Jónsson, f. 27. apríl 1868, fór til Utah 1874.
II. Síðari maður Vilborgar var Sigurður Árnason, f. 1842.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Saga Vestmannaeyja. Sigfús M. Johnsen. Ísafoldarprentsmiðja h.f. 1946.
- Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.
- Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.