„Torfmýri“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 1: | Lína 1: | ||
'''Torfmýri''' er gömul uppþornuð mýri í vesturhluta [[Herjólfsdalur|Herjólfsdals]], þar sem | '''Torfmýri''' er gömul uppþornuð mýri í vesturhluta [[Herjólfsdalur|Herjólfsdals]], þar sem [[Golfklúbbur Vestmannaeyja]] starfrækir golfvöll í dag. Þar er talið að [[Ormur Bárðarson]] hafi reist sér bæ á [[Landnám|landnámsöld]]. | ||
Á 15. og 16. öld var oft róstusamt í Vestmannaeyjum. Eru frá þessum tíma fyrstu fregnir um rán á Íslandi framin af útlendum sjóræningjum. Erjur þessar stöfuðu mest af viðureign umboðsmanna Danakonungs hér á landi við enska útgerðamenn og kaupmenn er tekið höfðu sér aðsetur í eyjunum í óþökk konungs, en Danakonungur taldi sig hafa öll yfiráð yfir norðurhluta Atlantshafs. Yfirráðin vildu enskir kaupmenn og farmenn ekki viðurkenna. Þeir sóttu fast í hin fengsælu Eyjamið og viðskipti við Eyjamenn. | Á 15. og 16. öld var oft róstusamt í Vestmannaeyjum. Eru frá þessum tíma fyrstu fregnir um rán á Íslandi framin af útlendum sjóræningjum. Erjur þessar stöfuðu mest af viðureign umboðsmanna Danakonungs hér á landi við enska útgerðamenn og kaupmenn er tekið höfðu sér aðsetur í eyjunum í óþökk konungs, en Danakonungur taldi sig hafa öll yfiráð yfir norðurhluta Atlantshafs. Yfirráðin vildu enskir kaupmenn og farmenn ekki viðurkenna. Þeir sóttu fast í hin fengsælu Eyjamið og viðskipti við Eyjamenn. | ||
1514 háðu Síðumenn, sem voru hér í | 1514 háðu Síðumenn, sem voru hér í kaupstaðarferð, og enskir duggarar bardaga á Torfmýri og féllu í þeim bardaga 14 Englendingar og einn Íslendingur. Hinir ensku duggarar voru dysjaðir í Torfmýri á stað sem nú er horfinn undir golfvöllinn. | ||
Vestan við [[Golfklúbbur Vestmannaeyja|Golfskálann]] á hamarsbrúninni má sjá steypta veggi frá þeim tíma þegar öllu sorpi sem til féll í Vestmannaeyjum var fleygt fram af [[Ofanleitishamar|Ofanleitishamri]] í sjóinn. Um 1980 var því hætt og byggð var sorpeyðingarstöð. | Vestan við [[Golfklúbbur Vestmannaeyja|Golfskálann]] á hamarsbrúninni má sjá steypta veggi frá þeim tíma þegar öllu sorpi sem til féll í Vestmannaeyjum var fleygt fram af [[Ofanleitishamar|Ofanleitishamri]] í sjóinn. Um 1980 var því hætt og byggð var sorpeyðingarstöð. | ||
[[Flokkur:Örnefni]] | [[Flokkur:Örnefni]] |
Útgáfa síðunnar 24. nóvember 2005 kl. 22:17
Torfmýri er gömul uppþornuð mýri í vesturhluta Herjólfsdals, þar sem Golfklúbbur Vestmannaeyja starfrækir golfvöll í dag. Þar er talið að Ormur Bárðarson hafi reist sér bæ á landnámsöld.
Á 15. og 16. öld var oft róstusamt í Vestmannaeyjum. Eru frá þessum tíma fyrstu fregnir um rán á Íslandi framin af útlendum sjóræningjum. Erjur þessar stöfuðu mest af viðureign umboðsmanna Danakonungs hér á landi við enska útgerðamenn og kaupmenn er tekið höfðu sér aðsetur í eyjunum í óþökk konungs, en Danakonungur taldi sig hafa öll yfiráð yfir norðurhluta Atlantshafs. Yfirráðin vildu enskir kaupmenn og farmenn ekki viðurkenna. Þeir sóttu fast í hin fengsælu Eyjamið og viðskipti við Eyjamenn.
1514 háðu Síðumenn, sem voru hér í kaupstaðarferð, og enskir duggarar bardaga á Torfmýri og féllu í þeim bardaga 14 Englendingar og einn Íslendingur. Hinir ensku duggarar voru dysjaðir í Torfmýri á stað sem nú er horfinn undir golfvöllinn.
Vestan við Golfskálann á hamarsbrúninni má sjá steypta veggi frá þeim tíma þegar öllu sorpi sem til féll í Vestmannaeyjum var fleygt fram af Ofanleitishamri í sjóinn. Um 1980 var því hætt og byggð var sorpeyðingarstöð.