„Ritverk Árna Árnasonar/Magnús Ástgeirsson (Litlabæ)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: Magnús Ástgeirsson (Litlabæ) '''Magnús Ástgeirsson''' í Litlabæ fæddist 1887, fórst af mb. Sæborgu 9. október 1909.<br> Foreldrar hans voru [[Ástgeir Gu...)
 
Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
[[Magnús Ástgeirsson (Litlabæ)]]
'''Magnús Ástgeirsson''' í [[Litlibær|Litlabæ]] fæddist 1887, fórst af mb. Sæborgu 9. október 1909.<br>
'''Magnús Ástgeirsson''' í [[Litlibær|Litlabæ]] fæddist 1887, fórst af mb. Sæborgu 9. október 1909.<br>
Foreldrar hans voru [[Ástgeir Guðmundsson|Ástgeir Guðmundsson]] bátasmiður í Litlabæ, f. 27. október 1858 á Bryggjum í Landeyjum, d. í Eyjum 30. september 1943, og kona hans  
Foreldrar hans voru [[Ástgeir Guðmundsson|Ástgeir Guðmundsson]] bátasmiður í Litlabæ, f. 27. október 1858 á Bryggjum í Landeyjum, d. í Eyjum 30. september 1943, og kona hans  

Útgáfa síðunnar 11. ágúst 2013 kl. 18:56

Magnús Ástgeirsson í Litlabæ fæddist 1887, fórst af mb. Sæborgu 9. október 1909.
Foreldrar hans voru Ástgeir Guðmundsson bátasmiður í Litlabæ, f. 27. október 1858 á Bryggjum í Landeyjum, d. í Eyjum 30. september 1943, og kona hans Kristín Magnúsdóttir, f. 10. janúar 1859 á Skíðbakka í A-Landeyjum, d. 13. júlí 1938 í Eyjum.

Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.

Systir Kristínar var Guðrún kona Gísla Eyjólfssonar á Búastöðum og Sigríður Magnúsdóttir í Reykjavík kona Júlíusar bróður Ástgeirs, - þ.e. hálfbróður.
Magnús fórst með mb. Sæborgu; voru tveir á bátnum í landferð. Rak bátinn á land fram af Klasbarða og fannst Magnús drukknaður þar mjög nálægt bænum í síki. Hinn maðurinn fannst aldrei, en það var Sigurjón mágur Magnúsar.
Magnús var mjög lipur veiðimaður og stundaði bjargveiðar alls konar við góðan orðstír, m.a. í Suðurey og Brandi. Hann var meðalmaður á hæð, stilltur og gætinn við störf og í daglegri umgengni, mjög vinfastur, trúr og traustur.
Lífsstarf hans var fiskveiðar, en annars var hann hagur vel á hvers konar smíðar, eins og hann á ættir til að rekja.


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit