„Páll Ingibergsson (Hjálmholti)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 21: | Lína 21: | ||
:''hlaðinn með knörrinn, glaður. | :''hlaðinn með knörrinn, glaður. | ||
== Myndir == | |||
<Gallery> | |||
Mynd:KG-mannamyndir 8278.jpg | |||
Mynd:KG-mannamyndir 13428.jpg | |||
Mynd:1974, bls. 233.jpg | |||
</gallery> | |||
{{Heimildir| | {{Heimildir| |
Útgáfa síðunnar 16. ágúst 2012 kl. 12:41
Páll Ingibergsson fæddist 6. maí 1913 í Hjálmholti í Vestmannaeyjum og lést 15. janúar 1988. Foreldar hans voru Guðjónía Pálsdóttir og Ingibergur Hannesson. Árið 1941 kvæntist hann Marín Guðjónsdóttur. Fyrst var heimili þeirra að Sætúni við Bakkastíg og síðar á Ásavegi 27. Þau eignuðust ekki börn, en tóku kjörson sem heitir Gunnar Reynir.
Árið 1946 keypti hann 55 tonna bát frá Svíþjóð sem hann, ásamt bróður sínum, gaf nafnið Reynir VE-15. Þennan bát áttu bræðurnir til 1966 þegar þeir seldu hann til Þorlákshafnar. Þegar Páll hætti á sjónum hafði hann verið sjómaður í 45 ár, þar af skipstjóri í 37 ár. Hann keypti þá lítið fyrirtæki, Selloplast, sem framleiðir sellofonpoka.
Óskar Kárason samdi formannavísu um Guðmund:
- Ingibergi borinn Páll
- bylgjur Reynir leiðir.
- Þó að særinn svelli háll,
- seggur þolinn veiðir.
Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:
- Þorinn Páll Bergi borinn
- beinir á sæinn Reyni,
- ill þó að flæða fylli
- fallandi þiljur allar.
- Dorgar á djúpa-torgi
- drengur með hraustu mengi,
- heldur svo heim að kveldi
- hlaðinn með knörrinn, glaður.
Myndir
Heimildir
- Friðrik Ásmundsson. Minningargrein um Pál Ingibergsson. Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1989.
- Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
- Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.