„Marinó Jónsson“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
mEkkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 14: Lína 14:
Mynd:KG-mannamyndir 7436.jpg
Mynd:KG-mannamyndir 7436.jpg
Mynd:KG-mannamyndir 7437.jpg
Mynd:KG-mannamyndir 7437.jpg
Mynd:KG-mannamyndir 10094.jpg
Mynd:KG-mannamyndir 10478.jpg


</gallery>
</gallery>

Útgáfa síðunnar 27. júlí 2012 kl. 14:45

Marinó

Sigurvin Marinó Jónsson fæddist 20. maí árið 1900 og lést 16. desember 1962. Foreldrar hans voru Jón Jónsson Fanndal og Manasína Sigurðardóttir að Skógum á Þelamörk í Eyjafirði.

Árið 1924 kvæntist hann Guðbjörgu Guðnadóttur frá Skagafirði. Þau bjuggu á Faxastíg 25. Börn þeirra voru Stefanía, Sigursteinn og Eiður.

Fljótlega eftir fermingu kom Marinó, eins og hann var oftast kallaður, til Vestmannaeyja í atvinnuleit. Framan af stundaði hann almenna vinnu en fór fljótlega á sjóinn og stundaði sjómennsku í 23 ár, fyrst sem vélstjóri en lokaárin sem skipstjóri. Marinó hætti á sjónum vegna heilsubrests og sneri sér þá að pípulagningarstörfum. Var hann í sjálfstæðum rekstri þar til hann lést. Marinó stofnaði fyrirtækið Miðstöðina. Sonur hans, Sigursteinn, tók síðan við rekstrinum og sonur hans og afabarn Marinós, Marinó Sigursteinsson, rekur nú fyrirtækið. Miðstöðin var fyrst til húsa við Faxastíg 25, síðan í Vosbúð við Strandveg en árið 2005 flutti fyrirtækið í myndarlegt húsnæði við Strandveg vestan við hús Ísfélags Vestmannaeyja.

Myndir



Heimildir