„Dalir“: Munur á milli breytinga
mEkkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 1: | Lína 1: | ||
[[Mynd: | [[Mynd:Dalabúið 1961.jpg|thumb|250px|Dalabúið árið 1961.]] | ||
[[Mynd:Guðjón Jónsson Dölum.jpg|thumb|250px|Guðjón Jónsson við heyskap]] | |||
[[Mynd:Dalabú.jpg|thumb|250px|Fjósið og hlöður.]] | [[Mynd:Dalabú.jpg|thumb|250px|Fjósið og hlöður.]] | ||
[[Mynd:Kúabúið í Dölum.JPG|thumb|250px|Kúabúið.]] | [[Mynd:Kúabúið í Dölum.JPG|thumb|250px|Kúabúið.]] | ||
Lína 6: | Lína 7: | ||
Húsið '''Dalir''' stendur utan byggðar. Manntal 1892 greinir frá 2 bæjum. Kúabúið var reist á árunum 1942-1946. Um miðja 20. öldina var kúabúskapur mikill í Dölum. Um 50 nautgripir voru þar og þótti stórt á vestmanneyskan mælikvarða. | Húsið '''Dalir''' stendur utan byggðar. Manntal 1892 greinir frá 2 bæjum. Kúabúið var reist á árunum 1942-1946. Um miðja 20. öldina var kúabúskapur mikill í Dölum. Um 50 nautgripir voru þar og þótti stórt á vestmanneyskan mælikvarða. | ||
Árið 1942 afréð [[bæjarstjórn]] Vestmanneyja að láta bæinn stofna kúabú til mjólkurframleiðslu. Fengin var til þess ábúð á Dalajörðunum tveimur og brátt hafin þar bygging fjóss og hlöðu. Þar var byggt 60 bása fjós og stórar þurrheyshlöður. Hlaðan var 638 rúmmetrar, safnþrær um 300 rúmmetrar og einnig var byggt áburðar- og vélahús. Einnig var þar byggð votheyshlaða, 113 rúmmetrar. | Árið 1942 afréð [[bæjarstjórn]] Vestmanneyja að láta bæinn stofna kúabú til mjólkurframleiðslu. Fengin var til þess ábúð á Dalajörðunum tveimur og brátt hafin þar bygging fjóss og hlöðu. Þar var byggt 60 bása fjós og stórar þurrheyshlöður. Hlaðan var 638 rúmmetrar, safnþrær um 300 rúmmetrar og einnig var byggt áburðar- og vélahús. Einnig var þar byggð votheyshlaða, 113 rúmmetrar. | ||
Lína 12: | Lína 12: | ||
Fyrsti bústjórinn var ráðinn [[Ársæll Grímsson]], sem síðustu árin hafði haft Dalajarðirnar til ábúðar. Hann stjórnaði búrekstri bæjarins fyrstu tvö árin. | Fyrsti bústjórinn var ráðinn [[Ársæll Grímsson]], sem síðustu árin hafði haft Dalajarðirnar til ábúðar. Hann stjórnaði búrekstri bæjarins fyrstu tvö árin. | ||
Í byrjun maímánaðar 1946 tók [[Guðjón Jónsson (Dölum)|Guðjón Jónsson]] við bústjórninni. | Í byrjun maímánaðar 1946 tók [[Guðjón Jónsson (Dölum)|Guðjón Jónsson]] við bústjórninni. | ||
Að öllu jöfnu voru 50 mjólkandi kýr og um 10-12 geldneyti á búinu. | Að öllu jöfnu voru 50 mjólkandi kýr og um 10-12 geldneyti á búinu. | ||
Lína 24: | Lína 22: | ||
* [[Ársæll Grímsson]] bústjóri 1944-1946 | * [[Ársæll Grímsson]] bústjóri 1944-1946 | ||
* [[Guðjón Jónsson (Dölum)|Guðjón Jónsson]] bústjóri 1946-1962 | * [[Guðjón Jónsson (Dölum)|Guðjón Jónsson]] bústjóri 1946-1962 | ||
== Myndir == | |||
<Gallery> | |||
Mynd:Dalir 2007.jpg | |||
Mynd:Guðjón við bústörf.jpg | |||
</gallery> | |||
{{Heimildir| | {{Heimildir| |
Útgáfa síðunnar 18. júlí 2012 kl. 08:04
Húsið Dalir stendur utan byggðar. Manntal 1892 greinir frá 2 bæjum. Kúabúið var reist á árunum 1942-1946. Um miðja 20. öldina var kúabúskapur mikill í Dölum. Um 50 nautgripir voru þar og þótti stórt á vestmanneyskan mælikvarða.
Árið 1942 afréð bæjarstjórn Vestmanneyja að láta bæinn stofna kúabú til mjólkurframleiðslu. Fengin var til þess ábúð á Dalajörðunum tveimur og brátt hafin þar bygging fjóss og hlöðu. Þar var byggt 60 bása fjós og stórar þurrheyshlöður. Hlaðan var 638 rúmmetrar, safnþrær um 300 rúmmetrar og einnig var byggt áburðar- og vélahús. Einnig var þar byggð votheyshlaða, 113 rúmmetrar. Árið 1944 var mæld hjá því nýrækt 8,5 ha. Áður hafði bæjarfélagið ræktað 4,7 ha. sáðsléttur, og látið rífa upp hundruð rúmmetra af grjóti úr því landi. Fyrsti bústjórinn var ráðinn Ársæll Grímsson, sem síðustu árin hafði haft Dalajarðirnar til ábúðar. Hann stjórnaði búrekstri bæjarins fyrstu tvö árin. Í byrjun maímánaðar 1946 tók Guðjón Jónsson við bústjórninni.
Að öllu jöfnu voru 50 mjólkandi kýr og um 10-12 geldneyti á búinu. Mjólk var flutt daglega til sjúkrahús bæjarins, elliheimili og barnaheimili. Það sem afgangs var þörfum þessara stofnana var selt í verslun er bærinn lét reka. Eftir að Mjólkursamsalan hóf verslun með mjólkurvörur í Eyjum árið 1954 fékk bærinn að selja sína mjólk þar. Árið 1962 seldi kaupstaðurinn Dalabúið úr eigu sinni.
Ábúendur
- Ólafur Árnason sýslumaður bjó á staðnum á árunum 1696-1722
- Ársæll Grímsson bústjóri 1944-1946
- Guðjón Jónsson bústjóri 1946-1962
Myndir
Heimildir
- Blik 1980.