„Arnardrangur“: Munur á milli breytinga
m (Mynd) |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 8: | Lína 8: | ||
Í Arnardrangi fer fram starfsemi [[Rauði Krossinn|Rauða Krossins]] og [[Lions]]-klúbbsins. Rauði Krossinn er með ýmiss konar námskeið ásamt venjulegu hjálpar- og aðstoðarstarfi. Þessi félög hafa staðið að miklum breytingum og endurnýjunum og er húsið orðið allt hið myndarlegasta. Gamli stíllinn fær þó að njóta sín þrátt fyrir miklar endurbætur. | Í Arnardrangi fer fram starfsemi [[Rauði Krossinn|Rauða Krossins]] og [[Lions]]-klúbbsins. Rauði Krossinn er með ýmiss konar námskeið ásamt venjulegu hjálpar- og aðstoðarstarfi. Þessi félög hafa staðið að miklum breytingum og endurnýjunum og er húsið orðið allt hið myndarlegasta. Gamli stíllinn fær þó að njóta sín þrátt fyrir miklar endurbætur. | ||
== Myndir == | |||
<Gallery> | |||
Mynd:Tib (30).jpg | |||
Mynd:Tib (88).jpg | |||
Mynd:Tib (96).jpg | |||
</gallery> | |||
{{Heimildir| | {{Heimildir| |
Núverandi breyting frá og með 13. júlí 2012 kl. 14:52
Húsið Arnardrangur var byggt árið 1928 og stendur við Hilmisgötu 11. Upphaflega var það hús Ólafs Ó. Lárussonar læknis en seinna heilsuverndarstöð. Heilsuverndarstöð hafði verið starfrækt í öðru húsnæði en árið 1954 keypti Vestmannaeyjabær Arnardrang og gerði að heilsuverndarstöð. Starfaði heilsuverndarstöðin í húsinu frá miðju ári 1955 til 30. maí 1971, þegar hún var flutt í nýja sjúkrahúsið.
Mikil starfsemi hefur verið í húsinu í gegnum árin. Tónlistarskóli Vestmannaeyja var þar um árabil áður en hann flutti í húsnæði Listaskóla Vestmannaeyja við Vesturveg, einnig var æfingaaðstaða Lúðrasveitar Vestmannaeyja. Þá voru A.A. samtökin með aðstöðu á jarðhæð hússins áður en þau fengu aðstöðu í núverandi húsnæði að Heimagötu 24.
Í Arnardrangi fer fram starfsemi Rauða Krossins og Lions-klúbbsins. Rauði Krossinn er með ýmiss konar námskeið ásamt venjulegu hjálpar- og aðstoðarstarfi. Þessi félög hafa staðið að miklum breytingum og endurnýjunum og er húsið orðið allt hið myndarlegasta. Gamli stíllinn fær þó að njóta sín þrátt fyrir miklar endurbætur.
Myndir
Heimildir
- Haraldur Guðnason. Við Ægisdyr: Saga Vestmannaeyjabæjar í 60 ár. I. bindi. Reykjavík: Vestmannaeyjabær, 1982.