„Pétur Andersen“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
m (Gísli Eyjólfsson br.)
Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
[[Mynd:KG-mannamyndir 8452.jpg|thumb|250px|Pétur]]
'''Hans ''Pétur'' (Peder) Andersen''', [[Sólbakki|Sólbakka]], fæddist 30. mars 1887 í Fredrikssundi í Danmörku og lést 6. apríl árið 1955. Foreldrar hans voru Carl Willum Andersen og Juliana Kristine Poulsen Andersen. Hans Peder var jafnan kallaður Danski-Pétur.

Lína 9: Lína 11:

Pétur kvæntist á ný. Seinni kona hans var [[Magnea Jónsdóttir]]. Þau eignuðust börnin [[Jóhann Andersen|Jóhann Júlíus]], [[Valgerður Andersen|Valgerði]] og dreng sem lést í vöggu.
Pétur kvæntist á ný. Seinni kona hans var [[Magnea Jónsdóttir]]. Þau eignuðust börnin [[Jóhann Andersen|Jóhann Júlíus]], [[Valgerður Andersen|Valgerði]] og dreng sem lést í vöggu.
== Myndir ==
<Gallery>
Mynd:KG-mannamyndir 5837.jpg
Mynd:KG-mannamyndir 8267.jpg
Mynd:KG-mannamyndir 8452.jpg
Mynd:KG-mannamyndir 8453.jpg
Mynd:KG-mannamyndir 8454.jpg
</gallery>

{{Heimildir|  
{{Heimildir|  

Útgáfa síðunnar 10. júlí 2012 kl. 08:00

Pétur

Hans Pétur (Peder) Andersen, Sólbakka, fæddist 30. mars 1887 í Fredrikssundi í Danmörku og lést 6. apríl árið 1955. Foreldrar hans voru Carl Willum Andersen og Juliana Kristine Poulsen Andersen. Hans Peder var jafnan kallaður Danski-Pétur.

Pétur kom til Vestmannaeyja 1907 og varð fljótlega eftirsóttur vélamaður því hann hafði meiri kunnáttu í þeim geira en flestir í þá daga. Hann var vélamaður á Friðþjófi 1907 hjá Friðriki Svipmundssyni og svo á Lunda I 1909-1911 hjá Guðleifi Elíssyni á Brúnum, varð þá formaður með Lunda I 1912-1920. Þá keypti hann Skógafoss 1921-1926, sem hann átti 2/5. parta í. Fjórir synir Péturs, þeir Willum, Knud, Emil og Jóhann urðu skipstjórar, en Njáll vélsmíðameistari. Þeir bræður áttu allir hluti í útgerðum.

Pétur var aflakóngur árið 1924.

Fjölskylda

Fyrri kona Péturs var Jóhanna Guðjónsdóttir. Þau áttu 6 börn: Valgerði Ólafíu Evu, Willum Jörgen, Knud Kristján, Njál, Emil Martein og Guðrún Svanlaug. Jóhanna lést árið 1934.

Pétur kvæntist á ný. Seinni kona hans var Magnea Jónsdóttir. Þau eignuðust börnin Jóhann Júlíus, Valgerði og dreng sem lést í vöggu.

Myndir

Heimildir

  • Agnes Valdimarsdóttir. Andersen ættin - ættfræðisíða [1]
  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.
  • Gísli Eyjólfsson frá Bessastöðum