„Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum/Reimleikar í Yztakletti (JGÓ)“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
Ekkert breytingarágrip |
m (Verndaði „Reimleikar í Yztakletti (JGÓ)“ [edit=sysop:move=sysop]) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 2. desember 2011 kl. 17:44
Jafnan hefur verið talið, að reimt væri í Yztakletti. Einhverju sinni var Guðrún Laugadóttir við heyskap í Yztakletti. Var hún þar ein manna, en hafði hund sinn með sér. Svaf hún í veiðimannabólinu, en hundurinn lá utan dyra. Nótt eina vaknaði hún við hávaða mikinn úti fyrir. Var hundurinn alveg trylltur. Er þetta hafði gengið nokkra stund, varð allt í einu dauðaþögn. Í sömu svifum var hundinum fleygt inn til hennar. Þegar hún fór að gæta að, sá hún, að hundurinn var steindauður. Hafði hann verið skorinn á háls.
(Almenn sögn).