„Þjóðhátíð í Eyjum“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
{{Þjóðhátíðarlagið|1991|[[Næturfjör|1990]]|[[Dagar og nætur|1992]]}}
Lagið '''Þjóðhátíð í Eyjum''' var [[Þjóðhátíð|þjóðhátíðarlag]] Vestmannaeyja árið 1991.
Lagið '''Þjóðhátíð í Eyjum''' var [[Þjóðhátíð|þjóðhátíðarlag]] Vestmannaeyja árið 1991.



Útgáfa síðunnar 25. júlí 2005 kl. 09:07

Þjóðhátíðarlag
1990 1991 1992

Lagið Þjóðhátíð í Eyjum var þjóðhátíðarlag Vestmannaeyja árið 1991.

Meðan húmið siglir sund
sælufunda leitum.
Göngum saman létt í lund,
lífsins gleði neitum.
Þessi dalur, þetta bál,
þessar fögru nætur.
Veigar dans og vinarmál
verma hjartarætur.
Ástin vekur unga snót,
allt er fegurð vafið.
Bjarma slær á gras og grjót,
Gleym­mér ei og hafið.
Amorskröftum nóttin nær
nötra fjallastráin.
Engin veit hvern endi fær
ævintýraþráin.
Vinur hvert sem ferðu frá
fjalladýrð og meyjum.
Meðan lifir þú munt þrá
þjóðhátíð í Eyjum.
Hærra öll nú hefjum róm
hér við loga bjarta.
Látum bergsins enduróm
ylja hverju hjarta.
Verum kát og frjáls og frí
felum dapurt sinni.
Eyjalögin enn á ný
efla náin kynni.
Lag: Geirmundur Valtýsson
Texti: Guðjón Weihe