„Blik 1965/Yngvi Þorkelsson“: Munur á milli breytinga
m (Verndaði „Blik 1965/Yngvi Þorkelsson“ [edit=sysop:move=sysop]) |
Ekkert breytingarágrip |

Lína 5: | Lína 5: | ||
Yngvi Þorkelsson | |||
[[Mynd: 1965 b 78.jpg|400px|left|thumb|Yngvi Þorkelsson.]] | [[Mynd: 1965 b 78 A.jpg|400px|left|thumb|''Yngvi Þorkelsson.'']] | ||
''Hér birtir Blik mynd af hagleiks- og leikhússmanninum Yngva Þorkelssyni, Vestmannaeying, sem getið hefur sér frœgðarorð í Ameríku fyrir mikið starf og listrænt í þágu leiklistarinnar. Yngvi fann sjálfan sig í þeim efnum, ef svo mætti segja, á leiksviði L.V. í Vestmannaeyjum. Yngvi Þorkelsson fæddist í Reykjavík en ólst upp í Vestmannaeyjum, sonur [[Þorkell Ólafsson|Þorkels Ólafssonar]] og [[Jóhanna Guðmundsdóttir frá Batavíu|Jóhönnu Guðmundsdóttur]].

''Yngvi fór vestur til Seattle á Kyrrahafsströnd vorið 1926, en áður hafði hann dvalizt nokkra mánuði í Kanada og m.a. lagt þar stund á enskunám. Á Kyrrahafsströndinni varði hann öllum tómstundum sínum til náms, en vann annars öll störf, sem buðust. Honum var leiklistin ríkust í huga.
| ''Yngvi fór vestur til Seattle á Kyrrahafsströnd vorið 1926, en áður hafði hann dvalizt nokkra mánuði í Kanada og m.a. lagt þar stund á enskunám. Á Kyrrahafsströndinni varði hann öllum tómstundum sínum til náms, en vann annars öll störf, sem buðust. Honum var leiklistin ríkust í huga.

''Árið 1928 keypti hann sér einkakennslu í framsögu og leiklist. Síðan lá leið hans á amerísk leiksvið. Jafnframt leikstarfinu í amerískum leikhúsum starfaði Yngvi mikið í félagslífi landa sinna þar vestra. Í einu Vesturheimsblaðinu segir um þennan Vestmannaeying: Hann nýtur mikilla vinsœlda í stöðu sinni og starfi. Það stafar ekki aðeins af hugkvæmni hans og fjölhæfni í öllu, sem lýtur að leiklist, leiksviðsgerð, leikaragervum og margþœttum öðrum undirbúningi leiksýninganna, heldur og ekki sízt persónan sjálf, sérstök prúðmennska og jafnvœgi í skapgerð. Sjálfur er hann góður leikari.
| ''Árið 1928 keypti hann sér einkakennslu í framsögu og leiklist. Síðan lá leið hans á amerísk leiksvið. Jafnframt leikstarfinu í amerískum leikhúsum starfaði Yngvi mikið í félagslífi landa sinna þar vestra. Í einu Vesturheimsblaðinu segir um þennan Vestmannaeying: Hann nýtur mikilla vinsœlda í stöðu sinni og starfi. Það stafar ekki aðeins af hugkvæmni hans og fjölhæfni í öllu, sem lýtur að leiklist, leiksviðsgerð, leikaragervum og margþœttum öðrum undirbúningi leiksýninganna, heldur og ekki sízt persónan sjálf, sérstök prúðmennska og jafnvœgi í skapgerð. Sjálfur er hann góður leikari.

Útgáfa síðunnar 11. september 2010 kl. 16:44
Hér birtir Blik mynd af hagleiks- og leikhússmanninum Yngva Þorkelssyni, Vestmannaeying, sem getið hefur sér frœgðarorð í Ameríku fyrir mikið starf og listrænt í þágu leiklistarinnar. Yngvi fann sjálfan sig í þeim efnum, ef svo mætti segja, á leiksviði L.V. í Vestmannaeyjum. Yngvi Þorkelsson fæddist í Reykjavík en ólst upp í Vestmannaeyjum, sonur Þorkels Ólafssonar og Jóhönnu Guðmundsdóttur.
Yngvi fór vestur til Seattle á Kyrrahafsströnd vorið 1926, en áður hafði hann dvalizt nokkra mánuði í Kanada og m.a. lagt þar stund á enskunám. Á Kyrrahafsströndinni varði hann öllum tómstundum sínum til náms, en vann annars öll störf, sem buðust. Honum var leiklistin ríkust í huga.
Árið 1928 keypti hann sér einkakennslu í framsögu og leiklist. Síðan lá leið hans á amerísk leiksvið. Jafnframt leikstarfinu í amerískum leikhúsum starfaði Yngvi mikið í félagslífi landa sinna þar vestra. Í einu Vesturheimsblaðinu segir um þennan Vestmannaeying: Hann nýtur mikilla vinsœlda í stöðu sinni og starfi. Það stafar ekki aðeins af hugkvæmni hans og fjölhæfni í öllu, sem lýtur að leiklist, leiksviðsgerð, leikaragervum og margþœttum öðrum undirbúningi leiksýninganna, heldur og ekki sízt persónan sjálf, sérstök prúðmennska og jafnvœgi í skapgerð. Sjálfur er hann góður leikari.
Yngvi stundaði nám í 4 ár við listaháskólann The Comic School í Seattle, sem þá var talinn einna beztur sinnar tegundar í Ameríku. Þaðan útskrifaðist hann í júni 1933 með þann vitnisburð, að hann teldist fjölhæfasti nemandi skólans. Hann hlaut hæstu einkunn í leiklist 1932, og styrki hlaut hann úr tveim sjóðum hans.
Jóhanna, móðir Yngva, var hálfsystir Friðriks Guðmundssonar, hins góðkunna verkamanns hér í Batavíu.
Bliki finnst rétt að geta Yngva Þorkelssonar með þessum orðum hins ameríska blaðs. Ungur Vestmannaeyingur fer allslaus út í hinn stóra heim og getur sér þar frægðar og frama.