„Júlíus Sigurðsson (Skjaldbreið)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
[[Mynd:Júlli á Skjaldbreið..jpg|thumb|250px|Stjórnandinn, Júlíus, á Sjómannadaginn.]]
[[Mynd:Júlli á Skjaldbreið..jpg|thumb|250px|Stjórnandinn, Júlíus, á Sjómannadaginn.]]
[[Mynd:Mynd-KG-mannamyndir 17131.jpg|thumb|250px|Júlíus með systkinum sínum.]]
'''Júlíus Sigurðsson''', [[Skjaldbreið]], fæddist í Vestmannaeyjum 2. júlí 1912 og lést 1. október 1974. Foreldrar hans voru [[Sigurður Ingimundarson]] og [[Hólmfríður Jónsdóttir]]. Júlíus var kvæntur Jakobínu Jónsdóttur frá Ólafsfirði og eignuðust þau 8 börn.  

Útgáfa síðunnar 9. júlí 2010 kl. 10:39

Stjórnandinn, Júlíus, á Sjómannadaginn.
Júlíus með systkinum sínum.

Júlíus Sigurðsson, Skjaldbreið, fæddist í Vestmannaeyjum 2. júlí 1912 og lést 1. október 1974. Foreldrar hans voru Sigurður Ingimundarson og Hólmfríður Jónsdóttir. Júlíus var kvæntur Jakobínu Jónsdóttur frá Ólafsfirði og eignuðust þau 8 börn.

Ungur hóf Júlíus sjómennsku með föður sínum sem var kunnur formaður í Eyjum. Formennsku hóf Júlíus á Blika árið 1930. Eftir það var Júlíus meðal annars með Þorgeir Goða, Gullþóri og Má. Eftir að Júlíus hætti sjómennsku vann hann sem vigtarmaður hjá Vinnslustöð Vestmannaeyja. Júlíus starfaði mikið með skipstjóra- og stýrimannafélaginu Verðandi og var formaður þar í fjögur ár.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Júlíus:

Skýr á sækir skeiðar láð
Skjaldbreið frá hann Júlli,
þó að storma bylgjan bráð
breiðum Þorgeir rúlli.

Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.