„Blik 1972/Tvö ljóð“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
(Ný síða: Efnisyfirlit 1972 :Séra ÞORSTEINN L. JÓNSSON: :::<big><big><big>Tvö ljóð</big></big></big> <br> <br> ::ÆTTARFYLGJAN ::Á ætt...) |
m (Verndaði „Blik 1972/Tvö ljóð“ [edit=sysop:move=sysop]) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 28. apríl 2010 kl. 17:22
- Tvö ljóð
- ÆTTARFYLGJAN
- Á ættleifð í sveitinni Örbirgð
- við allsleysi faðirinn bjó,
- en áður hans afar og ömmur
- þar ösluðu raunasjó.
- Á ættleifð í sveitinni Örbirgð
- Óðal hans réttnefnt hét Reynsla,
- rytjulegt afdalabú - - -,
- ættleifðin ömmu og afa,
- erfingja fyrrum og nú.
- Óðal hans réttnefnt hét Reynsla,
- Hver kona' er þar kinnfiskasogin,
- krangaleg beinagrind,
- þvi örbirgðin engan fitar,
- en aflagar kvenlega mynd.
- Hver kona' er þar kinnfiskasogin,
- Bóndinn þrælar og þraukar,
- þolinmóður sem klár,
- hann kvartar samt aldrei né kveinar,
- en kaldur hið ytra og fár.
- Bóndinn þrælar og þraukar,
- Það syrtir oft að, því að sorgin
- sækir þau óvænt heim,
- svo táraperlur af trega
- tindra hjá báðum þeim.
- Það syrtir oft að, því að sorgin
- Þar efldist enginn af auði,
- en andstreymi meir en nóg --,
- hver bóndi varð ríkur af raunum,
- svo ríkur, að loks hann dó.
- Þar efldist enginn af auði,
- AFMÆLISKVEÐJA
- frá sjálfum mér, til min sjálfs
- á 65 ára afmælinu, 19. júli 1971.
- frá sjálfum mér, til min sjálfs
- Allar mínar bænir beztu
- berist þér með skeytinu,
- að þær megi á þér rætast
- út að hinzta leitinu.
- Á gleðistund með geði og festu
- gerðum þínum stilltu í mát,
- en þegar að þér sorgin sækir
- sigra', en ekki bugast lát.
- Allar mínar bænir beztu
- Þitt innra líf er einkasaga,
- með átök sár í lundinni,
- slæm afleiðing af orsök hverri
- angrar þig á stundinni.
- Holdsins vill það orku aga,
- eins þinn tala fyrir munn --,
- forða þér frá villu' í verkum,
- vitleysu, sem þér er kunn.
- Þitt innra líf er einkasaga,
- Lífið er í Herrans höndum,
- herðist upp með seiglunni,
- þú skírist sem hinn skærsti málmur
- skínandi úr deiglunni,
- siglir fyrir seglum þöndum,
- við sjónarmiðin stefnu fest,
- en þér mun reynast hismi og hálmur,
- ef höfn og markmið hvergi sést.
- Lífið er í Herrans höndum,