„Blik 1961/Frá Arendal í Noregi“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: Efnisyfirlit 1961 300px|ctr ::'''<big>Torgið í Arendal í Noregi.</big>''' Hér var það, sem norskur bóndi auglýsti hrútakjöt t...) |
m (Verndaði „Blik 1961/Frá Arendal í Noregi“ [edit=sysop:move=sysop]) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 10. febrúar 2010 kl. 16:40
- Torgið í Arendal í Noregi.
Hér var það, sem norskur bóndi auglýsti hrútakjöt til sölu. Þá kom til hans askvaðandi gömul og súrlynd piparmey, lyktaði af kjötinu og sagði: „Fysveiattan, bönnaður dóninn þinn. þú hefur notað hrútinn til ánna.“ „Það er mesti misskilningur, kæra frú,“ sagði bóndi stillilega, „en þú hefðir átt að lykta af honum pabba hans!“
- Sönn saga frá Arendal.
- Sönn saga frá Arendal.
Eitt sinn heimsótti Ólafur 5. Noregskonungur bæinn Arendal. Þegar konungssnekkjan lagðist þar að bryggju, stóð þar bæjarfógetinn, eins og vera bar, í sínum fegursta skrúða, borðalagður með allar sínar orður á brjóstinu.
Konungur steig á land, og bæjarfógetinn flutti honum kveðjuorð, þar sem hann stóð á bryggjubrúninni. Hann sagði: „Yðar konunglega hátign! Í nafni allra íbúa Arendals býð ég yður hjartanlega velkominn hingað til þess að kynnast vorum yndislega bæ.“ Svo steig bæjarfógetinn eitt skref afturábak til þess að hneigja sig á sem virðulegastan og hermannlegastan hátt fyrir konungi.
Og — bæjarfógetinn steig út af bryggjubrúninni á svarta kaf í sjóinn. Þá hló Ólafur konungur, svo að kvað við.