„Blik 1941, 1. tbl/Fréttir“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 44: Lína 44:
::'''A + B + F''' fréttaritarar.
::'''A + B + F''' fréttaritarar.


::::::::————————<br>
Hérna um daginn tóku skólapiltarnir saman ráð sín, um að kjósa sér nú fegurðardrottningu.Og eftir að hafa svo horft sig rangeygða á hinn fríða skara skólasystra sinna, fóru þeir að gramsa í hjörtum sínum og bar þá mest á mynd Elísu litlu. Svo nú gengur hún um sem fegurðardrottning skólans. En strákarnir bíða þess með eftirvæntingu, hver kosinn verði fegurðarkóngur.
::::::::————————<br>
:::::::::Ábyrg ritstjórn
:::::Stjórn Málfundafélags [[Gagnfræðaskólinn í Vestmannaeyjum|Gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum.]]
::::::::STEINDÓRSPRENT H.F.






{{Blik}}
{{Blik}}

Útgáfa síðunnar 11. nóvember 2009 kl. 15:04

FRÉTTIR.


I. Mikil veikindi hafa geisað í bænum að undanförnu. Um tveggja vikna skeið af febrúar var skólanum okkar lokað og fellt niður nám. Það hefir því orðið að herða róðurinn við námið nú í seinni tíð meir en nokkru sinni fyrr, svo að það er þrautabarningur, að okkur þykir mörgum. En áfram skal það, og við viljum ekki gefast upp fyrr en í fulla hnefana. Um páska hefst prófið og þá nýtur maður þess, ef dyggilega og sleitulaust hefir verið starfað að vetrinum. Þannig lítum við á það að minnsta kosti.

II. Nú er kominn vorhugur í okkur krakkana, og knettirnir komnir á loft. Hvern dag leikum við handknattleik á leikvelli skólans undir stjórn og hvatning kennara okkar. Já, það er vorhugur úti og vorhugur inni, já, „það er sól úti, sól inni, sól í hjarta, sól í sinni“ hjá okkur, þótt skyggi í álinn á milli og dökk námsský dragi á loft.

III. í fyrravetur ákvað fræðslumálastjórnin að láta fram fara landspróf eða yfirlitspróf í nokkrum námsgreinum í gagnfræða- og héraðsskólum landsins. Prófin voru þreytt í 5 námsgreinum. Þær voru þessar: Íslandssaga, íslenzka, bókmenntasaga, réttritun og reikningur. Rétt þykir BLIKI að gefa Eyjabúum dálitla hugmynd um, hvað einkunnaskýrslur fræðslumálastjórnarinnar um þetta próf segja um gagnfræðaskólann okkar borinn saman við aðra gagnfræðaskóla í landinu.
Heildarniðurstöður eru á þessa leið um Gagnfræðaskólann hér:

Aðaleinkunn Einkunn Hvar í röðinni
Í íslenzku 5,54 3.
Í Íslandssögu 7,19 1.
Í bókmenntasögu 5,83 3.
Í réttritun 6,97 2.
Í reikningi 5,33 1.

Héraðsskólarnir fá yfirleitt betri útkomu úr fjórum fyrstu námsgreinunum en gagnfræðaskólarnir, enda eldri og þroskaðri nemendur í þeim skólum. Gagnfræðaskólinn okkar hefir hæsta einkunn í reikningi af öllum héraðs- og gagnfræðaskólunum.

A + B + F fréttaritarar.
————————

Hérna um daginn tóku skólapiltarnir saman ráð sín, um að kjósa sér nú fegurðardrottningu.Og eftir að hafa svo horft sig rangeygða á hinn fríða skara skólasystra sinna, fóru þeir að gramsa í hjörtum sínum og bar þá mest á mynd Elísu litlu. Svo nú gengur hún um sem fegurðardrottning skólans. En strákarnir bíða þess með eftirvæntingu, hver kosinn verði fegurðarkóngur.

————————


Ábyrg ritstjórn
Stjórn Málfundafélags Gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum.
STEINDÓRSPRENT H.F.