„Hundraðmannahellir“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
'''Hundraðmannahelli''' er hellir í [[Torfamýri]] sem er syðst í [[Herjólfsdalur|Herjólfsdal]]. Hægt er að finna hellin með því að Hellirinn er stuttan spöl frá [[Hamarsvegur|Hamarsvegi]], við 10 holu. Hann er frekar langur og fremur lágur til lofts. Ekki er hægt að ganga inn um hann heldur þarf að skríða. Hinsvegar er það hið mesta ævintýri að kanna þennan helli eins og margir geta sagt til um. Þegar komið er inn í hann þarf að skríða nokkurn spöl. Þegar lengra er komið þá hækkar hellirinn og getur meðal maður staðið næstum uppréttur í honum. Innst inn í hellinum er svo holrými og komast nokkrir þar inni í einu. Ef ímyndurnaraflið sé í lagi þá mátti halda að þetta væri staður úr „Indiana Jones“-mynd.
'''Hundraðmannahellir''' er hellir í [[Torfamýri]], syðst í [[Herjólfsdalur|Herjólfsdal]], stutt norður af [[Hamarsvegur|Hamarsvegi]], við 10 holu [[Golfklúbbur Vestmannaeyja|Golfvallarins]]. Inngangurinn snýr til suðvesturs.


Nafnið „Hundraðmannahellir“ er komið úr [[Tyrkjaránið|tyrkjaráninu]] en sagt er að hundrað manns hafi falið sig í honum. Ekki er það þó líklegt því erfitt hefði koma svo mörgum í þennan helli.
Hellirinn er frekar langur og fremur lágur til lofts. Ekki er hægt að ganga inn um hann heldur þarf að skríða nokkurn spöl til þess að komast inn í aðalhvelfinguna innst í hellinum. Þar er holrýmið nokkuð mikið, og nokkrir ættu að komast þar inn í einu. Sagt er að í [[Tyrkjaránið|Tyrkjaráninu]] hafi um hundrað manns falið sig í hellinum — og þaðan er nafnið til komið — en ólíklegt er að svo margir komist þar fyrir - kannski nær tuttugu eða þrjátíu. Hellirinn er hár í innri hvelfingunni, og getur meðalmaður staðið næstum uppréttur í honum. Hinsvegar er það hið mesta ævintýri kanna þennan helli eins og margir geta sagt til um.


==Heimildir==
==Heimildir==

Útgáfa síðunnar 7. júlí 2005 kl. 11:13

Hundraðmannahellir er hellir í Torfamýri, syðst í Herjólfsdal, stutt norður af Hamarsvegi, við 10 holu Golfvallarins. Inngangurinn snýr til suðvesturs.

Hellirinn er frekar langur og fremur lágur til lofts. Ekki er hægt að ganga inn um hann heldur þarf að skríða nokkurn spöl til þess að komast inn í aðalhvelfinguna innst í hellinum. Þar er holrýmið nokkuð mikið, og nokkrir ættu að komast þar inn í einu. Sagt er að í Tyrkjaráninu hafi um hundrað manns falið sig í hellinum — og þaðan er nafnið til komið — en ólíklegt er að svo margir komist þar fyrir - kannski nær tuttugu eða þrjátíu. Hellirinn er hár í innri hvelfingunni, og getur meðalmaður staðið næstum uppréttur í honum. Hinsvegar er það hið mesta ævintýri að kanna þennan helli eins og margir geta sagt til um.

Heimildir

  • Ferðabók F.Í. 1948 bls. 119-124