„Blik 1938, 2. tbl./Vorsöngur.“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
m (Verndaði „Blik 1938, 2.tbl./Vorsöngur.“ [edit=sysop:move=sysop])
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 17. október 2009 kl. 12:21

VORSÖNGUR.
Lag: Glad så som Fogeln i Morgenstunden.
Vorið er komið, af vetrardvala
vekur það sóley og fífil á hól,
angandi smáblóm um iðgræna bala
augunum depla mót skínandi sól.
Léttvængjað fiðrildi lynginu í
lifnar á ný.
Vorsólar bjarmi á bylgjunum ljómar.
Bjargfugla kliðurinn glaðlega hljómar
frá skuggblárri skor.
Ó, þú dýrðlega draumfagra vor.
Ó, þú draumfagra vor.
Sigurbjörn Sveinsson.