„Blik 1974/Jónsmessunótt, ljóð“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
Ekkert breytingarágrip |
m (Verndaði „Blik 1974/Jónsmessunótt, ljóð“ [edit=sysop:move=sysop]) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 1. október 2009 kl. 16:21
- Jónsmessunótt
- Hér á lyngbrekkan laufskógar-rjóður,
- sem er laugað í Jónsmessudögg.
- Sjá, hve blóminn mót lífinu brosir,
- finndu bjarkanna ilmandi rögg
- búna töfrum frá sumri og sólu,
- saman tengja hér köllun og mál:
- Gróandans gleði og þroska
- til að gefast af lífi og sál.
- Hér á lyngbrekkan laufskógar-rjóður,
- Hér er kliðandi sólfugla sveimur.
- Heyrðu sönginn um Skaparans mátt.
- Hvílík lifandi tilbeiðsla og tjáning,
- hér á tilhugalífið sinn þátt.
- Innst í fylgsnum í hugar míns heimum
- heyri ég skyldleikans ómþrungna nið.
- Taki því tunga mín undir
- í tengslum við Almættið.
- Hér er kliðandi sólfugla sveimur.
- Nú skín miðnætursólin á sumri,
- og sannar róandans eilífa mátt.
- Ég get því óruggur beðið hér bænar
- um bróðurkærleikans þjónustu og sátt.
- Þessi nótt veitir andanum orku,
- eggjar lögeggjan sóknar þann dug,
- sem ætlar að byggja brýrnar
- til bræðra með framandi hug.
- Nú skín miðnætursólin á sumri,