„Blik 1936, 1. tbl./Úr skólaslitaræðu“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 23: | Lína 23: | ||
Við íslendingar metum mjög mikils miklar gáfur. Það er ofureðlilegt, svo gáfuð sem þjóðin er. En sá tími mun og koma, að hún lærir að meta sem vert er viljastyrk og siðgæðisfestu. — Við lifum á ógnaöld. Sterkir straumar aukinnar áfengisnautnar flæða um landið. Við vitum það, að í kjölfar hennar fer margt annað illt. Hún drepur svo margt nýtilegt og gott, og leiðir fjölda góðra ungmenna á villigötur, gerir þau að mannleysum og ræflum. Ég minnist margra fluggáfaðra æskumanna frá skólaárum mínum. Það hryggir mig að hugsa til þess, að sumir þeirra — alltof margir — hafa farið í hundana, sem stundum er kallað, fyrir skort á siðgæðisfestu og orðið áfengisnautninni að bráð. | Við íslendingar metum mjög mikils miklar gáfur. Það er ofureðlilegt, svo gáfuð sem þjóðin er. En sá tími mun og koma, að hún lærir að meta sem vert er viljastyrk og siðgæðisfestu. — Við lifum á ógnaöld. Sterkir straumar aukinnar áfengisnautnar flæða um landið. Við vitum það, að í kjölfar hennar fer margt annað illt. Hún drepur svo margt nýtilegt og gott, og leiðir fjölda góðra ungmenna á villigötur, gerir þau að mannleysum og ræflum. Ég minnist margra fluggáfaðra æskumanna frá skólaárum mínum. Það hryggir mig að hugsa til þess, að sumir þeirra — alltof margir — hafa farið í hundana, sem stundum er kallað, fyrir skort á siðgæðisfestu og orðið áfengisnautninni að bráð. | ||
Þegar ég var drengur, var mér sagt, að ég gengi hana móður mína ofan í jörðina, ef ég gengi aftur á bak. Auðvitað finnst ykkur það fjarri öllum sannleik. Ég hefi stundum um þetta hugsað síðan, og ég hefi komizt að þeirri niðurstöðu, að það má færa þetta til sanns vegar — í óeiginlegri merkingu. Mér fljúga í hug æskumenn, sem eiga þess kost að læra eitthvað, sem auka má manngildi þeirra og gera þá hæfari þjóðfélagsþegna. Þeir byrja nám, en hætta svo í miðjum klíðum sökum leti eða viljaleysis, eða gutla við eitthvert tímanám til málamynda. Aðrir hverfa í sollinn og siðleysið svo fljótt, sem þeir geta losnað undan vernd móður sinnar. Áfengisstraumurinn og annað, sem honum er samfara, hirðir þá og skolar þeim fyrr eða síðar ofan í „götuæsin". |
Útgáfa síðunnar 4. september 2009 kl. 15:12
Úr skólaslitaræðu
Eftir Þorstein Þ. Víglundsson skólastjóra
<JR SKÓLASLITARÆÐU eftir ÞORSTEIN Þ. VÍGLUNDSSON skólastjóra
Nemendur á ykkar aldri, og þó eldri séu, hugsa æði mikið um prófeinkunnir. Og mig grunar, að hræðslan við þær aftri hér blátt áfram sumum unglingum frá framhaldsnámi. Það er illa farið, ef svo er, því að eins og við höfum oft áður minnst á, þá lærum við fyrst, og fremst fyrir lífið, þótt próf hafi hins vegar reynzt nauðsynleg hjálpartæki, ef svo mætti segja, til þess að skerpa viljann og auka kappið.
Þótt einkunnir þær, sem þið hafið hlotið, séu æði misjafnar, geta þær allar, hinar lágu sem hinar háu, verið ykkur hvatning, ef rétt er á litið.
Til ykkar, sem hlotið hafið háu einkunnirnar, vildi ég segja þetta: Kappkostið að halda þeim í skóla lífsins, ekki fremur en verða vill fyrir dómi mannanna, heldur umfram allt fyrir dómi ykkar eigin samvizku. Leggið alúð við hana, en daufheyrizt ekki við röddu hennar, þá mun ykkur ávalt takast að gera mun á réttu og röngu. Og í ljósi trúarinnar munu þið þá finna til hins guðdómlega samhengis í lífinu. Ályktanir hennar munu leiða til þess sannleika, sem sigrar að lokum.
Þið, sem hlotið hafið lægri einkunnirnar, skoðið þær ekki réttan mælikvarða á manngildi ykkar og manndóm. Látið því ekki hugfallast. Það sannast mjög oft, að starfshæfni mannsins kemur ekki í ljós við prófborðið. Margt próflágt ungmenni hefir orðið hinn nýtasti maður í þjóðfélaginu. Og það vona ég, að sannist á ykkur. Sá orðstír er sú einkunn, sem mest er um vert. Og verið þá fyrst og fremst trú yfir litlu.
Þið hafið langflest gert eins og þið hafið getað, og reynzt okkur prýðilegir unglingar, siðprúðir, duglegir og ástundunarsamir.
Við kennararnir megum því gleðjast og þakka ykkur. Slíkir ágætir eiginleikar nemenda gera kennslustarfið auðveldara og skemmtilegra, og það er aðdáanlegt, hvað sum ykkar hafa lagt mikið á sig og afkastað miklu.
Börnin og unglingarnir bera heimilum sínum, foreldrum og skólum vitni.
Dýrmætasta eign skólanna, eins og foreldranna, eru góð börn, góð, dugleg og siðprúð ungmenni.
Við íslendingar metum mjög mikils miklar gáfur. Það er ofureðlilegt, svo gáfuð sem þjóðin er. En sá tími mun og koma, að hún lærir að meta sem vert er viljastyrk og siðgæðisfestu. — Við lifum á ógnaöld. Sterkir straumar aukinnar áfengisnautnar flæða um landið. Við vitum það, að í kjölfar hennar fer margt annað illt. Hún drepur svo margt nýtilegt og gott, og leiðir fjölda góðra ungmenna á villigötur, gerir þau að mannleysum og ræflum. Ég minnist margra fluggáfaðra æskumanna frá skólaárum mínum. Það hryggir mig að hugsa til þess, að sumir þeirra — alltof margir — hafa farið í hundana, sem stundum er kallað, fyrir skort á siðgæðisfestu og orðið áfengisnautninni að bráð.
Þegar ég var drengur, var mér sagt, að ég gengi hana móður mína ofan í jörðina, ef ég gengi aftur á bak. Auðvitað finnst ykkur það fjarri öllum sannleik. Ég hefi stundum um þetta hugsað síðan, og ég hefi komizt að þeirri niðurstöðu, að það má færa þetta til sanns vegar — í óeiginlegri merkingu. Mér fljúga í hug æskumenn, sem eiga þess kost að læra eitthvað, sem auka má manngildi þeirra og gera þá hæfari þjóðfélagsþegna. Þeir byrja nám, en hætta svo í miðjum klíðum sökum leti eða viljaleysis, eða gutla við eitthvert tímanám til málamynda. Aðrir hverfa í sollinn og siðleysið svo fljótt, sem þeir geta losnað undan vernd móður sinnar. Áfengisstraumurinn og annað, sem honum er samfara, hirðir þá og skolar þeim fyrr eða síðar ofan í „götuæsin".