„Blik 1980/Íslandsmeistararnir í knattspyrnu 1979 (mynd)“: Munur á milli breytinga
m (Verndaði „Blik 1980/Íslandsmeistararnir í knattspyrnu 1979 (mynd)“ [edit=sysop:move=sysop]) |
m (Changed protection level for "Blik 1980/Íslandsmeistararnir í knattspyrnu 1979 (mynd)" [edit=autoconfirmed:move=autoconfirmed]) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 29. október 2008 kl. 08:30
Vissulega vakti það athygli manna um land allt, er knattspyrnulið Íþróttabandalags Vestmannaeyja (Í.B.V.) varð Íslandsmeistari á fyrra ári. Það hafði ekki áður gerzt í sögu bandalagsins.
Hér á Blik því láni að fagna að birta mynd af þessu sigursæla og knáa knattspyrnuliði, og svo aðstoðarmönnum og gesti.
Í fyrsta skipti í sögu Íslenskrar Knattspyrnu var Íslandsmeistarabikarinn fluttur út fyrir Faxaflóasvæðið. V/s Herjólfur flutti hann til Vestmannaeyja ásamt klappliði Eyjamanna. Þegar Herjólfur lagði að, var á Básaskersbryggjunni í Eyjum bíll við bíl og nokkrar þúsundir Eyjamanna til að fagna sigurvegurunum. Á bryggjunni lék Lúðrasveit Vestmannaeyja og Kór Landakirkju söng þjóðsöng Eyjamanna, Yndislega eyjan mín, eftir Sigurbjörn Sveinsson, rithöfund. Þá flutti Sveinn Tómasson, forseti bæjarstjórnar, ræðu og bauð Íslandsmeistarana velkomna heim. Þeim bárust blómvendir, peningagjafir o.fl. Eitt dagblaðanna komst þannig að orði að hinar ungu og glæsilegu eiginkonur og unnustur liðsmannanna hefðu mætt þeim um borð fagnandi.
Að lokinni skemmtilegri athöfn á bryggjunni, var gengið í veitingahúsið Gestgjafann og notið þar veizlufagnaðar í boði eigendanna, hjónanna Pálma Lórentssonar og konu hans, Marýar Sigurjónsdóttur