„Sigurður Stefánsson (sýslumaður)“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
mEkkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
| Lína 7: | Lína 7: | ||
[[Flokkur:Fólk]] | [[Flokkur:Fólk]] | ||
[[Flokkur:Sýslumenn]] | [[Flokkur:Sýslumenn]] | ||
[[Flokkur:Íbúar á Oddsstöðum]] | |||
Útgáfa síðunnar 28. júní 2007 kl. 14:45
Sigurður Stefánsson, sýslumaður 1723 til 1738. Foreldrar hans voru Stefán Þórarinsson og Vilborg Guðmundsdóttir úr Meðallandi, Vigfússonar. Hann ólst upp í Skarðshjáleigu í Mýrdal hjá Þorleifi lögréttumanni Einarssyni. Hann var fyrst settur sýslumaður í Vestmannaeyjum 1723 en fékk veitingu fyrir sýslunni 1727 og hélt henni til 1738. Kona hans var Þórunn Jónsdóttir, launsonar Ólafs sýslumanns Einarssonar. Þau bjuggu að Oddsstöðum í Vestmannaeyjum og áttu saman 10 börn.
Heimildir
- Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.