|
|
The content of the new revision is missing or corrupted. |
Lína 1: |
Lína 1: |
| '''Gísli Lárusson''' fæddist 16. febrúar 1865 á [[Kornhóll|Kornhóli]] í Vestmannaeyjum og lést 27. september 1935. Hann var bóndi, gullsmiður og útgerðarmaður í [[Stakkagerði]]
| |
|
| |
|
| Gísli nam gullsmíði og tók sveinsbréf 1885. Hann starfaði sem gullsmiður og úrsmiður í Eyjum.
| |
| Jafnframt var hann bóndi í [[Stakkagerði]], formaður á áraskipinu [[Friður|Frið]] og fróðleiksmaður. Hann var fjölfróður um [[Saga|sögu]] byggðarlagsins og sérstaklega um [[Sjávardýr|dýralífið í sjónum]] kringum Eyjarnar og [[Fuglar|fuglalífið]] í björgum þeirra. Gísli tók saman mikið örnefnasafn sem hefur verið varðveitt í handritasafni Fornleifafélagsins og hjá Örnefnastofnun Íslands. Þetta örnefnasafn hans var notað m.a. af [[Þorkell Jóhannesson|Þorkeli Jóhannessyni]] sem tók saman rit um Örnefni í Vestmannaeyjum. Hluti Örnefnasafns Gísla birtist einnig hér víða á þessum vef.
| |
|
| |
| Hann átti sæti í hreppsnefnd og sýslunefnd, var í stjórn ýmissa félaga í Vestmannaeyjum s.s. [[Ísfélag Vestmannaeyja|Ísfélags]], [[Björgunarfélag Vestmannaeyja|Björgunarfélags]], togarafélagsins Draupnis og kaupfélagsins Herjólfs. Hann var framkvæmdastjóri kaupfélagsins Bjarma í 10 ár. Hann var einn af stofnendum [[Framfarafélag Vestmannaeyja|Framfarafélags Vestmannaeyja]]
| |
|
| |
| Gísli var meðlimur [[Góðtemplarar|Góðtemplarareglunnar]] í 50 ár.
| |
|
| |
| ===Eiginkona og afkomendur===
| |
| Eiginkona hans var Jóhanna Sigríður Árnadóttir, dóttir [[Árni Diðriksson|Árna Diðrikssonar]] í Stakkagerði og konu hans, [[Ásdís Jónsdóttir|Ásdísar Jónsdóttur]] frá Djúpavogi. Jóhanna var forstöðukona [[Kvenfélagið Líkn|Kvenfélagsins Líknar]].
| |
|
| |
| Börn Gísla og Jóhönnu sem komust upp voru: [[Árni Gíslason|Árni]] kaupmaður, [[Georg Gíslason|Georg]] kaupmaður, [[Theódóra Gísladóttir|Theódóra]], flutti til Bandaríkjanna en lést 1920 úr spönsku veikinni, [[Lárus Gíslason|Lárus]] og [[Kristín Gísladóttir|Kristín]], kona Bjarna Sighvatssonar bankaritara í Reykjavík.
| |
|
| |
|
| |
| {{Heimildir|
| |
| * Páll Eggert Ólason. ''Íslenskar æviskrár, frá landnámstímum til ársloka 1940'', V. bindi. Reykjavík, Hið íslenska bókmenntafélag, 1952.
| |
| * Ýmsir. ''Gullsmiðatal 1991'', Reykjavík, Félag íslenskra gullsmiða, 1991.
| |
| * [[Þorsteinn Víglundsson|Þorsteinn Þ. Víglundsson]]. ''[[Blik]], Ársrit Vestmannaeyja 1972'', Vestmannaeyjum, Þorsteinn Þ. Víglundsson, 1972.
| |
|
| |
| }}
| |
|
| |
| [[Flokkur:Fólk]]
| |
| [[Flokkur:Kaupmenn]]
| |