„Grímur Marinó Steindórsson“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
Grímur Marinó Steindórsson fæddist á [[Vestmannabraut]] 76 árið 1933 og ólst upp í Vestmannaeyjum.
'''Grímur Marinó Steindórsson''' fæddist á [[Vestmannabraut]] 76 árið 1933 og ólst upp í Vestmannaeyjum.

Grímur er útlærður járniðnaðarmaður og vann sem slíkur um árabil. Hann lagði stund á málaralist og höggmyndagerð í Myndlistarskóla Reykjavíkur. Meðal þekktra listamanna sem voru með honum í Myndlistarskóla Reykjavíkur eru Jón Gunnar Árnason og Ragnar Kjartansson.

Lína 10: Lína 10:

[[Flokkur:Stubbur]]
[[Flokkur:Listamenn]]
[[Flokkur:Listamenn]]
[[Flokkur:Fólk]]
[[Flokkur:Fólk fætt á 20. öld]]

Útgáfa síðunnar 21. júní 2007 kl. 14:20

Grímur Marinó Steindórsson fæddist á Vestmannabraut 76 árið 1933 og ólst upp í Vestmannaeyjum.

Grímur er útlærður járniðnaðarmaður og vann sem slíkur um árabil. Hann lagði stund á málaralist og höggmyndagerð í Myndlistarskóla Reykjavíkur. Meðal þekktra listamanna sem voru með honum í Myndlistarskóla Reykjavíkur eru Jón Gunnar Árnason og Ragnar Kjartansson.

Listaverk Gríms Marinós eru víða um land, meðal annars Súlurnar á Hörgaeyrargarði hér í Eyjum.

Grímur Marinó hefur hlotið margar viðurkenningar fyrir listaverk sín, m.a. hlaut hann fyrstu verðlaun í samkeppni vegna leiðtogafundar Gorbatsjovs og Reagan í Höfða árið 1986. Það listaverk stendur við Flugstöðina í Eyjum. Þá hlaut hann önnur verðlaun Listahátíðar 1987.

Grímur hefur búið í Kópavogi um árabil og hefur meðal annars verið útnefndur Bæjarlistamaður Kópavogs.