„Grímur Gíslason (Haukabergi)“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 17: | Lína 17: | ||
* ''Sjómannadagsblað Vestmannaeyja.'' Vestmannaeyjum, 1980.}} | * ''Sjómannadagsblað Vestmannaeyja.'' Vestmannaeyjum, 1980.}} | ||
[[Flokkur:Formenn]] | [[Flokkur:Formenn]] | ||
[[Flokkur:Fólk fætt á 19. öld]] | |||
[[Flokkur:Fólk dáið á 20. öld]] | |||
[[Flokkur:Íbúar við Vestmannabraut]] |
Útgáfa síðunnar 21. júní 2007 kl. 14:19
Grímur Gíslason, Felli, fæddist á Stokkseyri 20. apríl 1898 og lést 31. mars 1980. Hann kvæntist Guðbjörgu Magnúsdóttur frá Felli árið 191 og eignuðust þau fjögur börn. Þau slitu samvistum.
Grímur byrjaði ungur sjómennsku. Formennsku byrjar hann á Kristbjörgu II árið 1926 sem þá var nýr bátur í eigu Gríms og tengdaföður hans, Magnúsar á Felli. Var Grímur formaður á Kristbjörgu II til ársins 1952. Þá hætti Grímur sjómennsku. Hann hóf vinnu í Vinnslustöðinni en hann var einn af stofnendum og eigendum fyrirtækisins. Þar starfaði hann í tuttugu ár eða fram til ársins 1972.
Grímur var einn af stofnendum Skipstjóra og stýrimannafélagsins Verðanda og vann mikið með því.
Óskar Kárason samdi formannavísu um Grím:
- Grími löngum gefst að ná
- góðum mörgum hlutnum.
- Kannar ennþá krappan sjá
- Kristbjargar í skutnum.
Heimildir
- Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
- Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.
- Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. Vestmannaeyjum, 1980.