„Herjólfsdalur“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
(breytingar: ábendingar frá Kára Bjarnasyni) |
||
Lína 1: | Lína 1: | ||
[[Mynd:Allurdal.jpg|thumb|300px|Herjólfsdalur]]'''Herjólfsdalur''' er líklega þekktasti dalur Vestmannaeyja. Hann stendur norð-vestarlega á [[Heimaey]] og er umlukinn fjöllum norðan- og austanmegin — [[Dalfjall]] og [[Moldi]]. Í dalnum eru mörg þekkt kennileiti svo sem [[Saltaberg]], [[Fjósaklettur]], [[Kaplagjóta]] og [[Torfmýri]]. Á toppi Dalfjalls að vestanverðu stendur [[Blátindur]], en [[Fiskhellar|Fiskhellanef]] stendur hæst á [[Moldi|Molda]] vestan megin, rétt ofan við [[Fiskhellar|Fiskhella]]. Syðst í Herjólfsdal má finna [[Hundraðmannahellir|Hundraðmannahelli]] og vestast er [[Mormónapollur]] rétt suður af Kaplagjótu. Í miðjum dalnum má finna Tjörnina, sem er | [[Mynd:Allurdal.jpg|thumb|300px|Herjólfsdalur]]'''Herjólfsdalur''' er líklega þekktasti dalur Vestmannaeyja. Hann stendur norð-vestarlega á [[Heimaey]] og er umlukinn fjöllum norðan- og austanmegin — [[Dalfjall]] og [[Moldi]]. Í dalnum eru mörg þekkt kennileiti svo sem [[Saltaberg]], [[Fjósaklettur]], [[Kaplagjóta]] og [[Torfmýri]]. Á toppi Dalfjalls að vestanverðu stendur [[Blátindur]], en [[Fiskhellar|Fiskhellanef]] stendur hæst á [[Moldi|Molda]] vestan megin, rétt ofan við [[Fiskhellar|Fiskhella]]. Syðst í Herjólfsdal má finna [[Hundraðmannahellir|Hundraðmannahelli]] og vestast er [[Mormónapollur]] rétt suður af Kaplagjótu. Í miðjum dalnum má finna Tjörnina, sem tengd er við vatnslind, nokkru austar. | ||
Í mörgum gömlum heimildum er dalurinn kallaður '''Dalver'''. | Í mörgum gömlum heimildum er dalurinn kallaður '''Dalver'''. | ||
Lína 8: | Lína 8: | ||
''Sjá aðalgrein:[[Herjólfsbær]]'' | ''Sjá aðalgrein:[[Herjólfsbær]]'' | ||
Í Herjólfsdal er talið að fyrsta býli Heimaeyjar hafi verið reist af landnámsmanninum [[Herjólfur Bárðason|Herjólfi Bárðarsyni]], sem dalurinn er kenndur | Í Herjólfsdal er talið að fyrsta býli Heimaeyjar hafi verið reist af landnámsmanninum [[Herjólfur Bárðason|Herjólfi Bárðarsyni]], sem dalurinn er við kenndur. Sagt er í ''Landnámu'' (''Melabók'' og ''Hauksbók''): | ||
:„''Herjólfur son Bárðar Bárekssonar, bróðir Hallgríms sniðbaka, byggði fyrst Vestmannaeyjar og bjó í Herjólfsdal fyrir innan Ægisdyr, þar sem nú er hraun brunnið. Hans son var Ormur auðgi, er bjó á Ormsstöðum við Hamar niðri, þar sem nú er blásið allt, og átti einn allar eyjarnar. Þær liggja fyrir Eyjasandi, en áður var þar veiðistöð og engra manna veturseta.''“ | :„''Herjólfur son Bárðar Bárekssonar, bróðir Hallgríms sniðbaka, byggði fyrst Vestmannaeyjar og bjó í Herjólfsdal fyrir innan Ægisdyr, þar sem nú er hraun brunnið. Hans son var Ormur auðgi, er bjó á Ormsstöðum við Hamar niðri, þar sem nú er blásið allt, og átti einn allar eyjarnar. Þær liggja fyrir Eyjasandi, en áður var þar veiðistöð og engra manna veturseta.''“ | ||
Sturlubók segir að Ormur hafi verið fyrsti landnámsmaður Vestmannaeyja, en ekki Herjólfur faðir hans. Flestir telja þó frásögn Melabókar og Hauksbókar réttari. | Sturlubók segir að Ormur hafi verið fyrsti landnámsmaður Vestmannaeyja, en ekki Herjólfur faðir hans. Flestir telja þó frásögn Melabókar og Hauksbókar réttari. | ||
Sagan um [[Vilborg og Hrafnarnir|Vilborgu og hrafnana]] er ein þekktasta þjóðsagan úr Herjólfsdal, en hún segir frá miklu grjóthruni undan Molda sem lagði byggð í eyði | Sagan um [[Vilborg og Hrafnarnir|Vilborgu og hrafnana]] er ein þekktasta þjóðsagan úr Herjólfsdal, en hún segir frá miklu grjóthruni undan Molda sem lagði þar byggð í eyði. Rannsóknir hafa bent til þess, að sagan eigi við lítil rök að styðjast, þar sem að byggð gat varla verið svo ofarlega í brekkunni. | ||
== Vatnslindin == | == Vatnslindin == | ||
Lína 21: | Lína 21: | ||
[[Þjóðhátíð]] hefur ætíð verið haldin í Herjólfsdal þegar hún hefur verið haldin á annað borð, að undanskildum árunum 1973 og 1974, þegar hún var flutt að [[Breiðabakki|Breiðabakka]] vegna þess hve dalurinn var illa farinn eftir [[Heimaeyjargosið|gosið]]. | [[Þjóðhátíð]] hefur ætíð verið haldin í Herjólfsdal þegar hún hefur verið haldin á annað borð, að undanskildum árunum 1973 og 1974, þegar hún var flutt að [[Breiðabakki|Breiðabakka]] vegna þess hve dalurinn var illa farinn eftir [[Heimaeyjargosið|gosið]]. | ||
Á fyrstu Þjóðhátíðinni, sem haldin var árið 1874 í tilefni af 1000 ára afmæli Íslandsbyggðar og þess að Kristján IX, Danakonungur færði Íslendingum fyrstu stjórnarskrá | Á fyrstu Þjóðhátíðinni, sem haldin var árið 1874 í tilefni af 1000 ára afmæli Íslandsbyggðar og þess að Kristján IX, Danakonungur færði Íslendingum sína fyrstu stjórnarskrá, var veisluborð hlaðið úr torfi og grjóti, og má enn sjá leifar af því í vestanverðum dalnum. Eftir það var Þjóðhátíð haldin öðru hvoru fram til upphafs 5. áratugar 20. aldar, en frá þeim tíma hefur hún verið haldin árlega. | ||
Útgáfa síðunnar 16. júní 2007 kl. 14:32
Herjólfsdalur er líklega þekktasti dalur Vestmannaeyja. Hann stendur norð-vestarlega á Heimaey og er umlukinn fjöllum norðan- og austanmegin — Dalfjall og Moldi. Í dalnum eru mörg þekkt kennileiti svo sem Saltaberg, Fjósaklettur, Kaplagjóta og Torfmýri. Á toppi Dalfjalls að vestanverðu stendur Blátindur, en Fiskhellanef stendur hæst á Molda vestan megin, rétt ofan við Fiskhella. Syðst í Herjólfsdal má finna Hundraðmannahelli og vestast er Mormónapollur rétt suður af Kaplagjótu. Í miðjum dalnum má finna Tjörnina, sem tengd er við vatnslind, nokkru austar.
Í mörgum gömlum heimildum er dalurinn kallaður Dalver.
- „Dalur þessi er á þrjá vegu luktur hamrafjöllum 6-700 feta háum. Neðan undir hömrunum eru víða grænar brekkur og tjörn í miðjum dalnum.“ (Þjóðólfur, 26. árgangur, bls 196)
Bær Herjólfs
Sjá aðalgrein:Herjólfsbær
Í Herjólfsdal er talið að fyrsta býli Heimaeyjar hafi verið reist af landnámsmanninum Herjólfi Bárðarsyni, sem dalurinn er við kenndur. Sagt er í Landnámu (Melabók og Hauksbók):
- „Herjólfur son Bárðar Bárekssonar, bróðir Hallgríms sniðbaka, byggði fyrst Vestmannaeyjar og bjó í Herjólfsdal fyrir innan Ægisdyr, þar sem nú er hraun brunnið. Hans son var Ormur auðgi, er bjó á Ormsstöðum við Hamar niðri, þar sem nú er blásið allt, og átti einn allar eyjarnar. Þær liggja fyrir Eyjasandi, en áður var þar veiðistöð og engra manna veturseta.“
Sturlubók segir að Ormur hafi verið fyrsti landnámsmaður Vestmannaeyja, en ekki Herjólfur faðir hans. Flestir telja þó frásögn Melabókar og Hauksbókar réttari.
Sagan um Vilborgu og hrafnana er ein þekktasta þjóðsagan úr Herjólfsdal, en hún segir frá miklu grjóthruni undan Molda sem lagði þar byggð í eyði. Rannsóknir hafa bent til þess, að sagan eigi við lítil rök að styðjast, þar sem að byggð gat varla verið svo ofarlega í brekkunni.
Vatnslindin
Vatnslindin í Herjólfsdal er ein þriggja náttúrulegra vatnslinda á Heimaey, hinar tvær Vilpa, sem nú er undir hrauni, og lindin í Stórhöfða, sem gefur lítið af sér. Árið 2005 fundust gamlir farvegir frá lindinni sem leiddu vatnið í tjörnina, en þeirra er getið í ýmsum gömlum heimildum.
Þjóðhátíð
Þjóðhátíð hefur ætíð verið haldin í Herjólfsdal þegar hún hefur verið haldin á annað borð, að undanskildum árunum 1973 og 1974, þegar hún var flutt að Breiðabakka vegna þess hve dalurinn var illa farinn eftir gosið.
Á fyrstu Þjóðhátíðinni, sem haldin var árið 1874 í tilefni af 1000 ára afmæli Íslandsbyggðar og þess að Kristján IX, Danakonungur færði Íslendingum sína fyrstu stjórnarskrá, var veisluborð hlaðið úr torfi og grjóti, og má enn sjá leifar af því í vestanverðum dalnum. Eftir það var Þjóðhátíð haldin öðru hvoru fram til upphafs 5. áratugar 20. aldar, en frá þeim tíma hefur hún verið haldin árlega.
Heimildir
- Árbók Ferðafélags Íslands 1948.
- Þjóðólfur, 31. ágúst 1874. af timarit.is