„Guðmundur Jónasson (formaður)“: Munur á milli breytinga
m (Verndaði „Guðmundur Jónasson (formaður)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 11: | Lína 11: | ||
[[Flokkur: Bændur]] | [[Flokkur: Bændur]] | ||
[[Flokkur: Skipstjórar]] | [[Flokkur: Skipstjórar]] | ||
[[Flokkur: Starfsmenn á | [[Flokkur: Starfsmenn á vistheimilum]] | ||
[[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]] | [[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]] | ||
[[Flokkur: Fólk dáið á 20. öld]] | [[Flokkur: Fólk dáið á 20. öld]] |
Núverandi breyting frá og með 16. apríl 2024 kl. 19:15
Guðmundur Jónasson frá Hólmahjáleigu í A.-Landeyjum, bóndi, dýralæknir, bátsformaður fæddist 17. október 1893 og lést 25. febrúar 1986 í Rvk.
Foreldrar hans voru Jónas Jónasson bóndi, f. 20. september 1865 í Kirkjulandshjáleigu í A.-Landeyjum, d. 6. október 1935, og kona hans Ragnheiður Halldórsdóttir frá Ósabakka á Skeiðum, húsfreyja, f. 17. febrúar 1861, d. 28. september 1932.
Guðmundur bjó ókvæntur í Hólmahjáleigu 1935-1953, fyrst í félagi við bróður sinn og mágkonu, frá 1940 með bústýru Guðlín Jónsdóttur, en síðast einn. Hann átti síðan heima á Núpi í Fljótshlíð, en vann mörg sumur á vistheimilinu í Breiðuvík. Hann dvaldi lengi í Hveragerði og síðast í Rvk, en átti lögheimili í Hólmahjáleigu til dánardægurs. Hann var formaður í Eyjum og við Landeyjasand, tók fyrst við formennsku af föður sínum á Svan árið 1924, var síðan formaður á Báru og síðast á nafnlausu juli. Hann var síðasti formaður við sandinn og reri síðast í apríl 1948.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.
- Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.