„Sæmundur Runólfsson (Gjábakka)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 11: Lína 11:
4. [[Einar Einarsson (Kastala)|Einar  Einarsson]],  tómthúsmaður frá [[Kastali|Kastala]], 30 ára.

4. [[Einar Einarsson (Kastala)|Einar  Einarsson]],  tómthúsmaður frá [[Kastali|Kastala]], 30 ára.

5. [[Magnús Sigmundsson (Oddsstöðum)|Magnús Sigmundsson]] sjómaður frá Oddsstöðum, 24 ára.

5. [[Magnús Sigmundsson (Oddsstöðum)|Magnús Sigmundsson]] sjómaður frá Oddsstöðum, 24 ára.

6. Sæmundur Runólfsson vinnumaður á [[Gjábakki|Gjábakka]], 22 ára.

6. [[Sæmundur Runólfsson (Gjábakka)|Sæmundur Runólfsson]] vinnumaður á [[Gjábakki|Gjábakka]], 22 ára.

Sæmundur var ókvæntur og barnlaus.
Sæmundur var ókvæntur og barnlaus.
{{Heimildir|
{{Heimildir|

Útgáfa síðunnar 29. september 2023 kl. 14:11

Sæmundur Runólfsson vinnumaður á Gjábakka fæddist 11. maí 1821 á Mið-Fossi í Mýrdal og drukknaði 18. nóvember 1842 í Eyjum.
Foreldrar hans voru Runólfur Sæmundsson frá Sámsstöðum í Fljótshlíð, bóndi á Mið-Fossi og Haugnum í Mýrdal, f. 1788, d. 15. ágúst 1827 á Haugnum, og kona hans Þorbjörg Gunnlaugsdóttir húsfreyja, f. 11. ágúst 1792, d. 27. júní 1868.

Sæmundur var með foreldrum sínum til 1828, var niðursetningur á Skagnesi í Mýrdal 1834-1836, var matvinnungur á Fossi í Mýrdal 1836-1837, í Pétursey þar 1837-1839, í Engigarði þar 1839-1840, á Giljum þar 1840-1841.
Hann fluttist úr Mýrdal að Miðhúsum 1842, var vinnumaður á Gjábakka, er hann drukknaði með Vigfúsi Bergssyni og fleiri 1842.
Þeir voru á leið til Elliðaeyjar 18. nóvember, er bátnum hlekktist á.
Þeir, sem drukknuðu, voru:
1. Vigfús Bergsson, bóndi og hreppstjóri í Stakkagerði, 31 árs.
2. Guðmundur Sigurðsson, bóndi á Oddsstöðum, 42 ára.
3. Brandur Eiríksson tómthúsmaður frá Hóli, 45 ára.
4. Einar Einarsson, tómthúsmaður frá Kastala, 30 ára.
5. Magnús Sigmundsson sjómaður frá Oddsstöðum, 24 ára.
6. Sæmundur Runólfsson vinnumaður á Gjábakka, 22 ára.
Sæmundur var ókvæntur og barnlaus.

Heimildir

Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.