„Kristín Snorradóttir (ljósmóðir)“: Munur á milli breytinga
mEkkert breytingarágrip |
mEkkert breytingarágrip |

Lína 1: | Lína 1: | ||
'''Kristín Snorradóttir''' húsmóðir, ljósmóðir á [[Vilborgarstaðir|Vilborgarstöðum]] fæddist 1773 í Fjósakoti í Meðallandi í V-Skaftafellssýslu og lézt 26. febrúar 1855 á Vilborgarstöðum.
| '''Kristín Snorradóttir''' húsmóðir, ljósmóðir á [[Vilborgarstaðir|Vilborgarstöðum]] fæddist 1773 í Fjósakoti í Meðallandi í V-Skaftafellssýslu og lézt 26. febrúar 1855 á Vilborgarstöðum.

Foreldrar: Snorri bóndi í Fjósakoti, f. 1732, d. 1784, Þórðar á Maríubakka í Fljótshverfi í V- | Foreldrar: Snorri bóndi í Fjósakoti, f. 1732, d. 1784, Þórðar á Maríubakka í Fljótshverfi í V-Skaftafellssýslu, f. 1695, Snorrasonar bónda á Maríubakka Björnssonar og kona Snorra í Fjósakoti, Guðbjörg, f. 1744, d. 12. maí 1785, Eyjólfs bónda og græðara á Kvískerjum í Öræfum og Ytri-Tungu í Landbroti í V-Skaftafellssýslu, Jónssonar og konu Eyjólfs, Sesselju Jónsdóttur.

Guðbjörg móðir Kristínar flúði í móðuharðindunum með dætur sínar að Nesi í Selvogi. Hún lézt þar, en dætur hennar fóru aftur austur.
| Guðbjörg móðir Kristínar flúði í móðuharðindunum með dætur sínar að Nesi í Selvogi. Hún lézt þar, en dætur hennar fóru aftur austur.

Útgáfa síðunnar 13. nóvember 2006 kl. 16:07
Kristín Snorradóttir húsmóðir, ljósmóðir á Vilborgarstöðum fæddist 1773 í Fjósakoti í Meðallandi í V-Skaftafellssýslu og lézt 26. febrúar 1855 á Vilborgarstöðum.
Foreldrar: Snorri bóndi í Fjósakoti, f. 1732, d. 1784, Þórðar á Maríubakka í Fljótshverfi í V-Skaftafellssýslu, f. 1695, Snorrasonar bónda á Maríubakka Björnssonar og kona Snorra í Fjósakoti, Guðbjörg, f. 1744, d. 12. maí 1785, Eyjólfs bónda og græðara á Kvískerjum í Öræfum og Ytri-Tungu í Landbroti í V-Skaftafellssýslu, Jónssonar og konu Eyjólfs, Sesselju Jónsdóttur.
Guðbjörg móðir Kristínar flúði í móðuharðindunum með dætur sínar að Nesi í Selvogi. Hún lézt þar, en dætur hennar fóru aftur austur.
Kristín nam ekki ljósmóðurfræði svo vitað sé, er nefnd ljósmóðir á manntali 1816, þá búsett á Vilborgarstöðum. Hún var skráð vinnukona, ekkja á Vilborgarstöðum 1845. Hún stundaði ljósmóðurstörf í Eyjum um árabil á fyrri hluta 19. aldar.
Maki (20. nóv. 1804): Guðmundur Jónsson bóndi, hreppstjóri og meðhjálpari á Vilborgarstöðum, f. þar um 1757, d. 4. apríl 1836.
Af börnum þeirra má telja Eyjólf, f. 8. des. 1805; Jón, f. 29. júní 1807, d. 5. júlí s. ár; Jón, f. 10. okt. 1808, d. 17. okt s. ár; Guðbjörg, f. 3. jan. 1810, d. 3. febr. s. ár; Þórdís, f. 8. okt. 1811, d. 20. okt. s. ár ; Snorri, f. 6. febr. 1813 og Elísabet, f. 11. okt. 1815, d. 27. júní 1837. Aðeins Eyjólfur og Elísabet eru hjá þeim 1816.
Heimildir
- Upphaflegur höfundur var Víglundur Þór Þorsteinsson
- Ljósmæður á Íslandi. Reykjavík: Ljósmæðrafélag Íslands, 1984.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
- Sigfús M. Johnsen: Saga Vestmannaeyja I. Reykjavík: 1946. bls 149/89.
- Björn Magnússon: Vestur-Skaftfellingar.