„Kristján Friðþjófsson“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: thumb|200px|''Kristján Friðþjófsson. '''Kristján Friðþjófsson''' rafvélavirkjameistari, rannsóknarlögreglumaður fæddist 4. mars 1951 í Reykjavík.<br> Foreldrar hans voru Friðþjófur Ingimar Jóhannesson loftskeytamaður í Reykjavík, f. 22. maí 1913 í Hafnarfirði, d. 10. janúar 1971 og kona hans Sigríður Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 21. maí 1918 á Ísafirði, d. 8. janúar 2005. Kristján lærði rafvélavirkju...) |
m (Verndaði „Kristján Friðþjófsson“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 18. maí 2023 kl. 10:43
Kristján Friðþjófsson rafvélavirkjameistari, rannsóknarlögreglumaður fæddist 4. mars 1951 í Reykjavík.
Foreldrar hans voru Friðþjófur Ingimar Jóhannesson loftskeytamaður í Reykjavík, f. 22. maí 1913 í Hafnarfirði, d. 10. janúar 1971 og kona hans Sigríður Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 21. maí 1918 á Ísafirði, d. 8. janúar 2005.
Kristján lærði rafvélavirkjun í Iðnskólanum í Reykjavík, lauk sveinsprófi 1973. Meistari var Magnús Hannesson. Hann var í Meistaraskóla í Eyjum 1978, lauk námi í Lögregluskóla ríkisins 1985 og í fingrafara- og lögreglufræðum í American Institute of Applied Science.
Hann vann hjá Síldarverksmiðjum ríkisins á Seyðisfirði 1973-1975, var rafvéla- og rafvirki í Eyjum 1975-1979, var rafverktaki í Bolungarvík 1979-1983 og í lögreglunni á Ísafirði 1983-1985, var síðan rannsóknarlögreglumaður hjá RLR.
Hann var formaður í Rafvirkjafélagi Vestmannaeyja árið 1977.
Þau Regína giftu sig, eignuðust þrjú börn.
I. Kona Kristjáns er Regína Ólafsdóttir húsfreyja, f. 21. júní 1954 í Reykjavík.
Börn þeirra:
1. Sigríður Kristjánsdóttir, f. 17. desember 1968.
2. Róbert Kristjánsson, f. 5. nóvember 1973.
3. Bryndís Kristjánsdóttir, f. 17. desember 1979.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.
- Rafvirkjatal. Ritstjóri: Þorsteinn Jónsson, Gunnar Guðmundsson og fleiri. Þjóðsaga hf. 1995.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.