„Sigríður Hauksdóttir (Svalbarði)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Sigríður Hauksdóttir''' frá Reykjavík, húsfreyja fæddist 9. júní 1946.
Foreldrar hennar voru Haukur Guðmundsson skrifstofumaður, f. 29. desember 1921, d. 21. nóvember 2002, og kona hans Sigurbjörg Eiríksdóttir húsfreyja, skrifstofumaður, f. 29. ágúst 1924, d. 13. janúar 2010.
Sigríður var með foreldrum sínum.
Hún lauk Gagnfræðaskólanámi, lauk Fósturskólanum.
Sigríður var fóstra í Reykjavík og dagmóðir í Eyjum.
H...)

m (Verndaði „Sigríður Hauksdóttir“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 3. apríl 2023 kl. 11:09

Sigríður Hauksdóttir frá Reykjavík, húsfreyja fæddist 9. júní 1946.
Foreldrar hennar voru Haukur Guðmundsson skrifstofumaður, f. 29. desember 1921, d. 21. nóvember 2002, og kona hans Sigurbjörg Eiríksdóttir húsfreyja, skrifstofumaður, f. 29. ágúst 1924, d. 13. janúar 2010.

Sigríður var með foreldrum sínum.
Hún lauk Gagnfræðaskólanámi, lauk Fósturskólanum.
Sigríður var fóstra í Reykjavík og dagmóðir í Eyjum.
Hún eignaðist barn með Ágústi 1968.
Þau Hafliði giftu sig, eignuðust eitt barn og Hafliði ættleiddi Kristinn Hjalta son Sigríðar. Þau fluttu til Eyja 1974, bjuggu við Bröttugötu og síðan á Svalbarði við Birkihlíð 24.
Þau fluttu til Reykjavíkur 1991, bjuggu við Laufengi 1.
Hafliði lést 2008.

I. Barnsfaðir Sigríðar er Ágúst Hjalti Sigurjónsson, f. 19. apríl 1943.
Barn þeirra:
1. Kristinn Hjalti, f. 18. janúar 1968. (Sjá neðar á síðu).

II. Maður Sigríðar var Hafliði Helgi Albertsson úr Reykjavík, sjómaður, verkstjóri, öryggisvörður, f. 25. október 1941, d. 13. júlí 2008.
Börn þeirra:
1. Kristinn Hjalti Hafliðason. Hann er kjörsonur Hafliða, f. 18. janúar 1968. Fyrrum sambúðarkona Ólöf Þrándardóttir.
2. Haukur Hafliðason bifreiðastjóri, skráði sig Sigríðarson, f. 10. nóvember 1974, d. 19. maí 2019. Fyrrum kona hans Dóra Ósk Bragadóttir.

Heimildir

Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.