„Fiska- og náttúrugripasafnið“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 2: | Lína 2: | ||
'''Fiska- og náttúrugripasafnið''' var stofnað árið 1964 og er því elsta safn sinnar tegundar á landinu. [[Friðrik Jesson]] var fenginn til þess að sjá um safnið. Safninu er skipt upp í þrjá sali: fugla-, fiska- og steinasafn. Friðrik sá um að stoppa upp flest alla fugla og fiska sem eru til staðar á safninu. | '''Fiska- og náttúrugripasafnið''' var stofnað árið 1964 og er því elsta safn sinnar tegundar á landinu. [[Friðrik Jesson]] var fenginn til þess að sjá um safnið. Safninu er skipt upp í þrjá sali: fugla-, fiska- og steinasafn. Friðrik sá um að stoppa upp flest alla fugla og fiska sem eru til staðar á safninu. | ||
Árið 2010 var nafni safnsins breytt í '''Sæheima''' | Árið 2010 var nafni safnsins breytt í '''Sæheima'''. | ||
== Fuglasafn == | == Fuglasafn == | ||
Lína 21: | Lína 21: | ||
* [[Kristján Egilsson (yngri)|Kristján Egilsson]] | * [[Kristján Egilsson (yngri)|Kristján Egilsson]] | ||
* [[Margrét Lilja Magnúsdóttir]] | * [[Margrét Lilja Magnúsdóttir]] | ||
{{Heimildir| | {{Heimildir| | ||
* Fiska- og náttúrugripasafn Vestmannaeyja. ''Fiska- og náttúrugripasafn Vestmannaeyja'' [Bæklingur]. Vestmannaeyjar. | * Fiska- og náttúrugripasafn Vestmannaeyja. ''Fiska- og náttúrugripasafn Vestmannaeyja'' [Bæklingur]. Vestmannaeyjar. | ||
}} | }} | ||
[[Flokkur:Stofnanir]] | [[Flokkur:Stofnanir]] | ||
[[Flokkur:Söfn]] | [[Flokkur:Söfn]] |
Núverandi breyting frá og með 30. ágúst 2022 kl. 21:50
Fiska- og náttúrugripasafnið var stofnað árið 1964 og er því elsta safn sinnar tegundar á landinu. Friðrik Jesson var fenginn til þess að sjá um safnið. Safninu er skipt upp í þrjá sali: fugla-, fiska- og steinasafn. Friðrik sá um að stoppa upp flest alla fugla og fiska sem eru til staðar á safninu.
Árið 2010 var nafni safnsins breytt í Sæheima.
Fuglasafn
Þarna má finna flesta þá fugla sem verpa á Íslandi uppstoppaða, auk allmargra flækingsfugla. Einnig eru þarna egg nær allra íslenskra varpfugla. Þó að þetta sé kallaður fuglasalur er nokkuð af uppstoppuðum fiskum og krabbdýrum í honum, svo sem sjaldséðum djúpsjávarfiskum. Hluti þess er fenginn frá Náttúrugripasafni Eyjabúa, sem var deild í Byggðasafninu.
Fiskasafn
Í þessum sal eru 12 ker sem geyma allar helstu tegundir nytjafiska sem veiðast hér við land, auk krabba, krossfiska, sæfífla og skeldýra. Í kerjunum er 6°C heitur sjór, sem dælt er úr borholu skammt frá safninu og er sá sjór því tandurhreinn.
Steinasafn
Þar er hægt að finna alls konar tegundir skrautsteina sem fundist hafa hér á landi. Flestir þessir steinar eru gjöf hjónanna Unnar Pálsdóttur og Sveins Guðmundssonar, Arnarstapa í Vestmannaeyjum, til Vestmannaeyjabæjar og var Náttúrugripasafninu falin varsla þeirra.
Nafnbreyting: Sæheimar
Vestmannaeyjabær sá um rekstur safnsins allt þar til að Þekkingarsetur Vestmannaeyja tók við rekstrinum í janúar 2010. Á þeim tímamótum var nafni safnsins breytt í "Sæheimar".
Safnstjórar
Heimildir
- Fiska- og náttúrugripasafn Vestmannaeyja. Fiska- og náttúrugripasafn Vestmannaeyja [Bæklingur]. Vestmannaeyjar.