|
|
The content of the new revision is missing or corrupted. |
Lína 1: |
Lína 1: |
| Það eru margir og fagrir hellar í Vestmannaeyjaklasanum. Gaman er að gægjast í hellana og sjá undraverk náttúrunar. Sumir telja hvelfingarnar inn undir [[Súlnasker]] og Stórhellana í [[Hellisey]] sem hella en ekki er venja að gera það. Fallegasti hellirinn er trúlega [[Kafhellir]] í [[Hæna|Hænu]]. Í Stórhöfða eru [[Fjósin]] og er ekki hægt að komast að þeim nema í báti. Austan við Napann, innan við Sölvaflá, þar er [[Selhellir]]. Austar í [[Stórhöfði|Stórhöfða]] er [[Stórhöfðahellir]] eða einnig þekktur sem Höfðahellir. [[Litli Höfðahellir]] er þar skammt hjá og má með sanni segja að margir hellar séu í Vestmannaeyjum og allir eru þeir mjög stórfenglegir. Á Haugum er [[Haugahellir.]] En ekki eru allir hellar við sjó því [[Hundraðmannahellir]] er í Ofanleitishrauninu og er hann einn þekktasti hellir ásamt [[Klettshellir|Klettshelli]] í Vestmannaeyjum. Margir fleiri hellar eru í Vestmannaeyjum svo sem [[Teistuhellir]], [[Strembuhellir]], [[Æðahellir]] og [[Landahellir]], en hann er nú týndur.
| |
| [[Kethellir]] er hellir sem hefur verið tyrft yfir og er hann á lóð númer 26 við [[Bessahraun]].
| |
|
| |
|
| [[Flokkur:Hellar]]
| |
| [[Flokkur:Náttúra]]
| |