„Svala Johnsen (Suðurgarði)“: Munur á milli breytinga

Fara í flakk Fara í leit
(Bætti við texta)
Ekkert breytingarágrip
The content of the new revision is missing or corrupted.
Lína 1: Lína 1:
Anna Svala Johnsen fæddist 19. október 1917 í Vestmannaeyjum. Hún lést 16. janúar 1995. Foreldrar hennar voru [[Margrét Marta Jónsdóttir]] og [[Árni J. Johnsen]] kaupmaður og bóndi í [[Suðurgarður|Suðurgarði]]. Eiginmaður Svölu var [[Ólafur Þórðarson]] rafvirkjameistari, fæddur í Reykjavík. Þau eignuðust þrjú börn, [[Árni Óli Ólafsson|Árna Óla]], [[Jóna Ólafsdóttir|Jónu]] og [[Margrét Marta Ólafsdóttir|Margréti Mörtu]] en Ólafur átti einnig tvær dætur af fyrra hjónabandi.


Svala vann við margs konar störf um ævina. T.d. var hún ein af fyrstu konunum sem voru kokkar á síldarbátum á fimmta áratug síðustu aldar. Hún þótti hamhleypa til verka og um margra ára skeið reytti hún [[Lundi|lunda]] í Suðurgarði, sem þótti afbragðs vara auk þess sem lundafiðursængur frá henni voru eftirsóttar. Síðustu ár starfsævi sinnar starfaði hún við ræstingar í [[Gagnfræðaskólinn í Vestmannaeyjum|Gagnfræðaskólanum]] og svo [[Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum|Framhaldsskólanum]] þegar hann var stofnaður.
[[Flokkur:Fólk]]

Útgáfa síðunnar 15. ágúst 2006 kl. 10:07