„Hrefna Hálfdanardóttir“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 19. júní 2022 kl. 17:46

Hrefna og Brynjólfur með synina Gísla og Hálfdán.

Hrefna Hálfdánardóttir frá Akureyri fæddist 17. ágúst 1904. Hún dó 8. júlí 1982, 77 ára. Þau Brynjólfur Einarsson giftust 27. janúar 1926 og áttu heima á Eskifirði til 1933, að þau fluttust til Vestmannaeyja. Faðir Hrefnu fór einnig þangað. Hann var Hálfdan Jónsson beykir, fæddur 18. júní 1874 í Odda á Mýrum í Hornafirði, dáinn 29. júní 1959, 85 ára.

Synir Hrefnu og Brynjólfs voru Hálfdan Brynjar og Gísli Hjálmar.


Heimildir

  • Ættir Síðupresta eftir Björn Magnússon, bls 45.