„Páll Þorbjörnsson (skipstjóri)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 3: | Lína 3: | ||
'''Páll Þorbjörnsson, skipstjóri''', var landskjörinn þingmaður á árunum 1934 til 1937. | '''Páll Þorbjörnsson, skipstjóri''', var landskjörinn þingmaður á árunum 1934 til 1937. | ||
Páll fæddist í Vatnsfirði þann 7. október 1906. Páll lést í Vestmannaeyjum þann 20. febrúar 1975. Foreldrar Páls voru Þorbjörn Þórðarson (fæddur 21. apríl 1875, dáinn 25 desember 1961) héraðslæknir á Bíldudal og Guðrún Pálsdóttir (fædd 25. janúar 1883, dáin 3. júlí 1971). Páll kvæntist þann 20. maí 1933 Bjarnheiði Jónu (fædd 7. september 1910) dóttur Guðmundar Guðmundssonar bónda á Ragnheiðarstöðum í Flóa og Ólafar Jónsdóttur. | Páll fæddist í Vatnsfirði þann 7. október 1906. Páll lést í Vestmannaeyjum þann 20. febrúar 1975. Foreldrar Páls voru Þorbjörn Þórðarson (fæddur 21. apríl 1875, dáinn 25 desember 1961) héraðslæknir á Bíldudal og Guðrún Pálsdóttir (fædd 25. janúar 1883, dáin 3. júlí 1971). Páll kvæntist þann 20. maí 1933 [[Bjarnheiður Guðmundsdóttir|Bjarnheiði Jónu]] (fædd 7. september 1910) dóttur Guðmundar Guðmundssonar bónda á Ragnheiðarstöðum í Flóa og Ólafar Jónsdóttur. | ||
Páll lauk gagnfræðaprófi í Reykjavík árið 1922. Tók farmannapróf árið 1930 frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík. Hann stundaði sjómennsku frá sextán ára aldri þar til hann varð 24 ára gamall eða á árunum 1920-1932. Þá var hann ráðinn kaupfélagsstjóri Kaupfélags alþýðu í Vestmannaeyjum í nokkur ár en þá kallaði sjórinn aftur til hans og eftir það var hann skipstjóri og útgerðarmaður í Vestmannaeyjum. Páll stundaði kaupsýslustörf síðustu árin sem hann lifði. Hann var í stjórn Síldarverksmiðja ríkisins 1935-1937 og yfirskoðunarmaður ríkisreikinga 1936-1937. | Páll lauk gagnfræðaprófi í Reykjavík árið 1922. Tók farmannapróf árið 1930 frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík. Hann stundaði sjómennsku frá sextán ára aldri þar til hann varð 24 ára gamall eða á árunum 1920-1932. Þá var hann ráðinn kaupfélagsstjóri Kaupfélags alþýðu í Vestmannaeyjum í nokkur ár en þá kallaði sjórinn aftur til hans og eftir það var hann skipstjóri og útgerðarmaður í Vestmannaeyjum. Páll stundaði kaupsýslustörf síðustu árin sem hann lifði. Hann var í stjórn Síldarverksmiðja ríkisins 1935-1937 og yfirskoðunarmaður ríkisreikinga 1936-1937. |
Útgáfa síðunnar 9. mars 2021 kl. 13:58
Páll Þorbjörnsson, skipstjóri, var landskjörinn þingmaður á árunum 1934 til 1937.
Páll fæddist í Vatnsfirði þann 7. október 1906. Páll lést í Vestmannaeyjum þann 20. febrúar 1975. Foreldrar Páls voru Þorbjörn Þórðarson (fæddur 21. apríl 1875, dáinn 25 desember 1961) héraðslæknir á Bíldudal og Guðrún Pálsdóttir (fædd 25. janúar 1883, dáin 3. júlí 1971). Páll kvæntist þann 20. maí 1933 Bjarnheiði Jónu (fædd 7. september 1910) dóttur Guðmundar Guðmundssonar bónda á Ragnheiðarstöðum í Flóa og Ólafar Jónsdóttur.
Páll lauk gagnfræðaprófi í Reykjavík árið 1922. Tók farmannapróf árið 1930 frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík. Hann stundaði sjómennsku frá sextán ára aldri þar til hann varð 24 ára gamall eða á árunum 1920-1932. Þá var hann ráðinn kaupfélagsstjóri Kaupfélags alþýðu í Vestmannaeyjum í nokkur ár en þá kallaði sjórinn aftur til hans og eftir það var hann skipstjóri og útgerðarmaður í Vestmannaeyjum. Páll stundaði kaupsýslustörf síðustu árin sem hann lifði. Hann var í stjórn Síldarverksmiðja ríkisins 1935-1937 og yfirskoðunarmaður ríkisreikinga 1936-1937.
Páll var skipstjóri á Skaftfellingi á stríðsárunum 1942—1945 og var í siglingum með fisk til Englands. Áhöfnin á Skaftfellingi öðlaðist mikla frægð þegar þeir björguðu 52 manna áhöfn af þýskum kafbáti og sigldu með þá til Englands.
Páll var skipstjóri á mótorbátinn Nönnu RE, en það var flutningaskip.
Loftur Guðmundsson samdi eitt sinn formannsvísu um Pál:
- Gáfur og ráðsnilld glæsa Pál
- garp á Ránarþingi
- með heppni kannar hættuál
- hann á Skaftfellingi.
Óskar Kárason samdi einnig formannavísu um Pál:
- Palli krata krappan sjó
- kann í byljum rata,
- þó að natin niðar þró
- Nönnu vilji glata.
Myndir
Heimildir
- Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.
- Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.