„Friðrik Svipmundsson“: Munur á milli breytinga
Oskarpetur (spjall | framlög) Ekkert breytingarágrip |
Oskarpetur (spjall | framlög) Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 1: | Lína 1: | ||
Friðrik Svipmundsson [[Lönd]]um var fæddur að Loftsölum í Mýrdal 15. apríl 1871 og lést 3. júlí 1935. Hann kom til Vestmannaeyja 1893 og reri með [[Gísli Lárusson|Gísla Lárussyni]] á [[Friður|Friði]]. Um aldamótin 1900 gerðist hann formaður og var fljótt aflasæll. Hann var með vertíðarskipið [[Ísafold]] lengst af, þar til hann vélvæddist. | Friðrik Svipmundsson [[Lönd]]um var fæddur að Loftsölum í Mýrdal 15. apríl 1871 og lést 3. júlí 1935. Hann kom til Vestmannaeyja 1893 og reri með [[Gísli Lárusson|Gísla Lárussyni]] á [[Friður|Friði]]. Um aldamótin 1900 gerðist hann formaður og var fljótt aflasæll. Hann var með vertíðarskipið [[Ísafold]] lengst af, þar til hann vélvæddist. | ||
Árið 1906 kaupir hann [[Friðþjófur|Friðþjóf]] og | Árið 1906 kaupir hann [[Friðþjófur|Friðþjóf]] og var formaður á honum til 1912. Þá keypti hann [[Örn]] og var á honum til 1920. Eftir það var hann formaður á [[Friðþjófur|Friðþjófi]], [[Atlantis]] og [[Hjálpari|Hjálpara]] til 1930. Friðrik var með eindæmum veðurglöggur og las vel í veðrið. Kom það oft fyrir að hann fór út í vonskuveðri og það batnaði, eða að hann kom snemma inn og veðrið versnaði. | ||
Friðrik var mörg sumur formaður á Seyðisfirði og var jafnan aflahæstur þar. | Friðrik var mörg sumur formaður á Seyðisfirði og var jafnan aflahæstur þar. |
Útgáfa síðunnar 23. júlí 2006 kl. 11:22
Friðrik Svipmundsson Löndum var fæddur að Loftsölum í Mýrdal 15. apríl 1871 og lést 3. júlí 1935. Hann kom til Vestmannaeyja 1893 og reri með Gísla Lárussyni á Friði. Um aldamótin 1900 gerðist hann formaður og var fljótt aflasæll. Hann var með vertíðarskipið Ísafold lengst af, þar til hann vélvæddist.
Árið 1906 kaupir hann Friðþjóf og var formaður á honum til 1912. Þá keypti hann Örn og var á honum til 1920. Eftir það var hann formaður á Friðþjófi, Atlantis og Hjálpara til 1930. Friðrik var með eindæmum veðurglöggur og las vel í veðrið. Kom það oft fyrir að hann fór út í vonskuveðri og það batnaði, eða að hann kom snemma inn og veðrið versnaði.
Friðrik var mörg sumur formaður á Seyðisfirði og var jafnan aflahæstur þar.
Friðrik var aflakóngur þrisvar sinnum, árin 1907, 1909 og 1911.
Heimildir
- Jón Sigurðsson. Aflakóngar Vestmannaeyja 1906-1929. Sjómannadagsblaðið 1961. 10. árg.
- Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.