„Sigurður Ólafsson (Lyngbergi)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Sigurður Ólafsson''' frá Lyngbergi, parketmaður, kaupmaður fæddist 2. júní 1945 á Lyngbergi.<br> Foreldrar hans voru Ólafur Önundarson sjómaður, skipstjóri, s...) |
m (Verndaði „Sigurður Ólafsson (Lyngbergi)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 28. október 2020 kl. 18:14
Sigurður Ólafsson frá Lyngbergi, parketmaður, kaupmaður fæddist 2. júní 1945 á Lyngbergi.
Foreldrar hans voru Ólafur Önundarson sjómaður, skipstjóri, síðar parketlagningamaður í Reykjavík, f. 21. september 1915, d. 27. júlí 1990, og kona hans Bergþóra Magnúsdóttir frá Bergholti, f. 10. maí 1910 í Norðurbúðarhjáleigu í A-Landeyjum, d. 5. desember 1997 í Reykjavík.
Sigurður var með foreldrum sínum í æsku, flutti með þeim til Reykjavíkur.
Hann vann við parketlagnir, stofnaði parketverslunina Parka ehf. ásamt öðrum og rak hana.
Síðustu árin hafa hjónin rekið gistiheimilisþjónustu að Giljalandi í Skaftártungu, V.-Skaft.
I. Kona Sigurðar, (19. ágúst 1967), er Þuríður Ágústa Jónsdóttir húsfreyja, gistiheimilisrekandi, f. 19. ágúst 1949. Foreldrar hennar voru Jón Þorkelsson frá Bjarka á Eskifirði, rafvirki í Vogum á Vatnsleysuströnd, f. 2. ágúst 1922 á Eskifirði, d. 8. febrúar 1998, og Sigríður Jónasdóttir frá Vetleifsholti á Rangárvöllum, húsfreyja, f. 17. febrúar 1925, d. 15. ágúst 2016.
Börn þeirra:
1. Anna Rakel Sigurðardóttir húsfreyja, ritari, bókari f. 17. febrúar 1967. Maður hennar Sigurjón Gylfason.
2. Helga Hjördís Sigurðardóttir, f. 27. apríl 1968, húsfreyja, rekur parketverslun í Danmörku. Sambýlismaður hennar Sigurður Frosti Þórðarson.
II. Barnsmóðir Sigurðar er Ásta Steingerður Geirsdóttir, f. 16. júlí 1953.
Börn þeirra:
1. Ýrr Sigurðardóttir hjúkrunarfræðingur, f. 26. febrúar 1977.
2. Sif Sigurðardóttir verkakona, býr í Danmörku, f. 26. febrúar 1977.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Morgunblaðið 14. desember 1997. Minning Bergþóru.
- Prestþjónustubækur.
- Sigurður.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.