„Anna Einarsdóttir (Skála)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Anna Einarsdóttir''' frá Skála u. Eyjafjöllum, húsfreyja fæddist 26. apríl 1872 í Skála u. Eyjafjöllum og lést 6. febrúar 1939.<br> Foreldrar hennar voru Ei...) |
m (Verndaði „Anna Einarsdóttir (Skála)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 21. apríl 2020 kl. 13:45
Anna Einarsdóttir frá Skála u. Eyjafjöllum, húsfreyja fæddist 26. apríl 1872 í Skála u. Eyjafjöllum og lést 6. febrúar 1939.
Foreldrar hennar voru Einar Híerónýmusson, f. 7. september 1846 í Holtssókn, d. 6. apríl 1922, og fyrri kona hans Þorbjörg Sveinsdóttir, f. 25. júlí 1829, d. 17. mars 1894.
Anna var með foreldrum sínum í Ásólfsskála, en þau skildu og hún varð niðursetningur í Stóru-Mörk 1879.
Hún var vinnukona í Holti 1902, er þau Einar giftu sig. Þau eignuðust tvö börn, en Sigurður, yngra barnið, ólst upp hjá föðurforeldrum í Landeyjum. Þau fluttu til Eyja frá Skála u. Eyjafjöllum 1907, bjuggu í Skála (Litla-Hlaðbæ).
Einar lést 1930 og Anna 1939.
Maður Önnu, (26. október 1902), var Einar Jóhannsson frá Vorsabæ í A-Landeyjum, verkamaður, f. 24. júní 1875, d. 28. desember 1930.
Börn þeirra:
1. Guðrún Einarsdóttir húsfreyja í Skála, f. 10. október 1903, d. 30. maí 1961.
2. Sigurður Einarsson sjómaður, f. 29. nóvember 1904, d. 6. febrúar 1943.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.