„Elva Ósk Ólafsdóttir“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 1: | Lína 1: | ||
[[Mynd:ElvaÓsk.jpg|thumb|200px|Elva Ósk Ólafsdóttir leikkona]] | |||
Elva Ósk Ólafsdóttir er fædd 24. ágúst 1964. Hún fæddist í Vestmannaeyjum og ólst þar upp. | Elva Ósk Ólafsdóttir er fædd 24. ágúst 1964. Hún fæddist í Vestmannaeyjum og ólst þar upp. | ||
Útgáfa síðunnar 17. júlí 2006 kl. 15:28
Elva Ósk Ólafsdóttir er fædd 24. ágúst 1964. Hún fæddist í Vestmannaeyjum og ólst þar upp.
Elva Ósk lauk námi frá Leiklistarskóla Íslands árið 1989. Fyrsta hlutverk hennar að loknu námi var Adela í Húsi Bernörðu Alba hjá Leikfélagi Akureyrar en þar lék hún einnig Snæfríði Íslandssól í Íslandsklukkunni. Elva hefur auk þess leikið hlutverk í fjölmörgum leiksýningum, bæði í Borgarleikhúsinu og í Þjóðleikhúsinu og hlotið viðurkenningar fyrir.
Elva hefur einnig leikið í kvikmyndum og hlaut meðal annars Edduverðlaunin 2002 fyrir leik sinn í Hafinu. Elva lék einnig Ungfrú Snæfells- og Hnappadalssýslu í kvikmyndinni Nýtt líf eftir Þráinn Bertelsson sem var að mestu tekin upp í Vestmannaeyjum.
Elva Ósk fer með hlutverk Jóhönnu í framhaldsþáttunum Örnen sem Danmarks Radio framleiðir en þeir hafa verið sýndir á RÚV. Elva leikur þar Jóhönnu, systur aðalsöguhetjunnar og er búsett í húsinu Lukku í Vestmannaeyjum. Þættirnir hafa notið mikilla vinsælda og voru meðal annars tilnefndir til evrópsku Emmy- verðlaunanna.