„Karl Guðmundsson (skipstjóri)“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
(Til aðgreiningar alnafna.) |
m (Viglundur færði Karl Guðmundsson (Lögbergi) á Karl Guðmundsson (skipstjóri)) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 15. desember 2019 kl. 18:12
Guðmundur Karl Guðmundsson fæddist 17. júlí 1922 og lést 25. ágúst 1987. Hann var kvæntur Símoníu Pálsdóttur. Þau bjuggu að Brekastíg 25 um miðja síðustu öld en bjuggu að Sóleyjargötu 4 seinni árin.
Karl var skipstjóri og útgerðarmaður.
Óskar Kárason samdi formannavísu um Karl:
- Karl veit ég kvíðinn varla,
- köld þó að hríðin gnöldri.
- Guðmundsson lögs á lundinn
- leggur títt siglu-steggja.
- Fjalari halur halar,
- hafs út í bylja kafi.
- Fengsæll með formanns gengi
- fyrðurinn loðnung myrðir.
Myndir
Heimildir
- Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.