„Eymundur Guðmundsson“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Eymundur Guðmundsson''' frá Hrútafellskoti u. Eyjafjöllum, sjómaður, verkamaður fæddist 12. ágúst 1900 í Hrútafellskoti u. Eyjafjöllum og lést 26. maí 1970.<br> Fore...) |
m (Verndaði „Eymundur Guðmundsson“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 13. ágúst 2019 kl. 11:30
Eymundur Guðmundsson frá Hrútafellskoti u. Eyjafjöllum, sjómaður, verkamaður fæddist 12. ágúst 1900 í Hrútafellskoti u. Eyjafjöllum og lést 26. maí 1970.
Foreldrar hans voru Guðmundur Ólafsson bóndi, f. 5 nóvember 1855, d. 16. maí 1901, og kona hans Valgerður Eyjólfsdóttir húsfreyja, f. 1. nóvember 1859 í Stóra-Dalssókn, d. 1. nóvember 1942.
Systkini hans í Eyjum:
1. Þorgerður Guðmundsdóttir vinnukona, f. 13. mars 1890, d. 19. júní 1979.
Eymundur var með ekkjunni móður sinni og systkinum í Hrútafellskoti syðra 1901, með henni leigjandi í Hrútafellskoti 1910, vinnumaður í Ytri-Skógum þar 1920 og þar var móðir hans vinnukona.
Hann fluttist til Eyja 1926, var leigjandi sjómaður á Hvoli við Heimagötu 1930. Hann var lengi fiskverkamaður hjá Ísfélaginu.
Þau Þóra giftu sig 1934, leigðu í Ásgarði við Heimagötu við giftingu 1934 og bjuggu þar með Sigrúnu 1940, bjuggu á Hásteinsvegi 35 1942 og síðan, eignuðust Ingigerði þar 1942.
I. Kona Eymundar, (22. desember 1934), var Þóra Þórarinsdóttir frá Seyðisfirði, f. 4. mars 1906, d. 5. janúar 1971.
Börn þeirra:
1. Sigrún Reykjalín Eymundsdóttir húsfreyja, talsímakona, f. 29. september 1940.
2. Ingigerður Reykjalín Eymundsdóttir húsfreyja, hjúkrunarfræðingur, f. 1. mars 1942 á Hásteinsvegi 35.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.