„Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 2005/Trani í Görn“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 1: | Lína 1: | ||
<big><big><center>'''[[Valdimar Tranberg Jakobsson]],'''</center><br> | <big><big><center>'''[[Valdimar Tranberg Jakobsson]],'''</center></big></big><br> | ||
<big><big><center>'''Trani í Görn'''</center><br> | <big><big><center>'''Trani í Görn'''</center></big></big><br> | ||
<big><center>F. 25.10.1900 - D. 9. 4.1968</center></big>[[Mynd:Hilmir Högnason.png|200px|thumb|''Hilmir Högnason.'']][[Mynd:Valdimar Tranberg á trillu sinni Tý VE 307.png|200px|thumb|''Valdimar Tranberg á trillu sinni Tý VE 307.'']] | <big><center>F. 25.10.1900 - D. 9. 4.1968</center></big>[[Mynd:Hilmir Högnason.png|200px|thumb|''Hilmir Högnason.'']][[Mynd:Valdimar Tranberg á trillu sinni Tý VE 307.png|200px|thumb|''Valdimar Tranberg á trillu sinni Tý VE 307.'']] |
Núverandi breyting frá og með 9. ágúst 2019 kl. 13:11
- Um kapteininn Tranberg ég kveða vil brag
- karlinn svo hýran og glettinn.
- Hann undi á sjónum hvern einasta dag
- sem almættið gaf fyrir Klettinn.
- Hann trúði á trillunnar völundarsmíð
- og treysti á mátt sinn og megin.
- Hann setti í þorskinn við Breka og Svið
- og sönglaði, björginni feginn.
- Húskvarnabyssan í skutrúmi stóð
- og starði svo bráð eftir veiði.
- Skyttan í skyndingu hólkinn sinn hlóð
- svo skotglaður innan við Eiði.
- Hæfði í skotinu skarfana tólf,
- svartfugl og súlu og blika.
- Karl var nú glaður með full fiskihólf
- og fékk sér í pípu án hika.
- Begga í fjörunni bónda síns beið,
- svo broshýr er kom hann að landi,
- með brúsa af brennheitu kaffi og sneið
- af brauði frá Rikka á Sandi.
- Hilmir Högnason frá Vatnsdal.